Fótbolti

Guardiola vill þjálfa í Englandi

Pep í klefa Bayern.
Pep í klefa Bayern.
Spænski þjálfarinn Pep Guardiola, þjálfari Bayern München, hefur greint frá því að hann stefni á að þjálfa í Englandi einn daginn.

Guardiola mætir með sitt lið til leiks í kvöld gegn Chelsea í leiknum um Ofurbikarinn. Hann er á milli sigurvegara Meistaradeildarinnar og Evrópudeildarinnar.

"Ég er ungur þjálfari, aðeins 42 ára og aðeins með fjögurra ára reynslu í þjálfun," sagði Guardiola sem stýrði áður frábæru liði Barcelona.

"Áður en ég hætti vil ég fara til Englands og þjálfa þar. Það verður þó ekki fyrr en eftir nokkur ár. Ég vil helst vera sem lengst hérna hjá Bayern. Ég vil fá að kynnast stemningunni í ensku úrvalsdeildinni."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×