Skoðun

Grýttur menntavegur

Oddný G. Harðardóttir skrifar
Menntun verður ekki frá okkur tekin. Hún er verðmæt bæði fyrir einstaklinga og samfélagið í heild. Þess vegna er það alvarlegt ef færri fara í nám en þess óska eða ef menntun stæði aðeins þeim efnameiri til boða. Slík staða væri óásættanleg.

Samkvæmt ársskýrslu LÍN 2014 hefur lánþegum í námi erlendis fækkað um 14 prósent á fimm ára tímabili. Kjör námsmanna versnuðu á sama tíma. Viðbrögð við fækkun nemenda hefðu átt að vera bætt kjör en ekki ákvarðanir um frekari skerðingu lána. Nú hefur LÍN uppfært framfærslugrunn námsmanna erlendis fyrir skólaárið 2016-2017 og í sumum löndum lækkar hann um 20 prósent á næsta skólaári til viðbótar við 10 prósenta lækkun á árinu 2014. Afleiðingarnar verða þær að færri nemendur eiga möguleika á að sækja sér menntun erlendis. Er það stefna hægristjórnarinnar að fækka þeim Íslendingum sem bera hingað heim þekkingu og færni annarra þjóða?

Fullorðnir námsmenn

Ákvörðun um fjöldatakmarkanir í framhaldsskólum varð til þess að þeir sem eru 25 ára eða eldri sækja síður um skólavist og telja sig ekki lengur velkomna í framhaldsskólana. Öll þekkjum við fólk sem hefur þurft að hætta námi vegna ýmissa ófyrirsjáanlegra aðstæðna svo sem veikinda eða fjárskorts. Við þekkjum líka öll fólk sem hefur farið aftur í framhaldsskóla í heimahéraði sínu eftir slíkt hlé. Mörg þeirra voru orðin 25 ára og hafa lokið iðnnámi eða stúdentsprófi og háskólaprófi í kjölfarið. Þau starfa um allt land, í leikskólum, grunnskólum, heilbrigðisstofnunum og tæknigreinum svo dæmi séu tekin. Landsbyggðin hefur treyst á menntun og störf þessara einstaklinga. Það er mikill missir fyrir einstaklingana sem hafa ekki tækifæri til að styrkja stöðu sína með öðrum hætti. Missirinn verður ekki síður mikill fyrir samfélagið í heild þegar litið er til framtíðar. Er það stefna hægristjórnarinnar að fækka faglærðu fólki á landsbyggðinni?

Ríkisstjórnin hefur lagt stein í götu fólks sem vill afla sér menntunar. En það er stutt til kosninga! Þessu getum við jafnaðarmenn breytt.




Skoðun

Skoðun

Saman gegn ríkisofbeldi

Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson,Örlygur Steinar Arnaldsson,Sigurhjörtur Pálmason,Simon Valentin Hirt,Kristbjörg Arna E. Þorvaldsdóttir,Ari Logn,Margrét Rut Eddudóttir skrifar

Sjá meira


×