Innlent

Grunnskólakennarar samþykktu vinnumat

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
vísir/vilhelm
Meirihluti félagsmanna í Félagi grunnskólakennrara hefur samþykkt upptöku nýs vinnumats. Atkvæðagreiðsla um vinnumat stóð yfir frá klukkan níu föstudaginn 13. febrúar til klukkan 13 í dag.

Á kjörskrá voru 4.453 og þar af greiddu 2.942 atkvæði, eða 66,1 prósent. 57,8 prósent sögðu já við vinnumatinu og 39,4 sögðu nei. Auðir seðlar voru 81 eða 2,8 prósent.

Félag grunnskólakennara og Samband íslenskra sveitarfélaga skrifuðu undir kjarasamning 20. maí 2014 og fól samningurinn í sér að að gert yrði nýtt vinnumat þar sem metinn yrði sá tími sem kennari ver til skilgreindra verkefna. Verkefnisstjórn um vinnumat var skipuð síðasta sumar og vann að gerð vinnumatsins.


Tengdar fréttir

Vinnumat framhaldsskólakennara fellt

Kjarasamningar félagsmanna í Félagi framhaldsskólakennara og Félagi stjórnenda í framhaldsskólum eru lausir frá og með deginum í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×