Innlent

Grunnskólakennarar felldu kjarasamning: „Staðan er orðin mjög þröng“

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Grunnskólakennarar hafa fellt nýgerðan kjarasamning.
Grunnskólakennarar hafa fellt nýgerðan kjarasamning. Vísir/Vilhekm
Félagsmenn í Félagi grunnskólakennara felldu nýjan kjarasamning við Samband íslenska sveitarfélaga í atkvæðagreiðslu sem stóð dagana 31. ágúst til 5. september. Formaður félagsins hefur áhyggjur af dræmri þáttöku í atkvæðagreiðslunni og segir ljóst að staðan í samningamálum sé orðin þung.

Á kjörskrá voru 4.513 félagsmenn. 57,5 prósent félagsmanna sögðu nei, eða 1.740 félagsmenn. Já sögðu 39,7 prósent eða 1.201 félagsmaður. Auðir seðlar voru 87 en 3.028 greiddu atkvæði í kosningunni eða um 67 prósent félagsmanna í félaginu.

Ólafur Loftsson, formaður félagsins, segir að búið sé að boða til fundar hjá samninganefnd á miðvikudaginn þar sem farið verði yfir stöðu mála. Ljóst sé þó að staðan sé orðin þung enda er þetta í annað sinn sem félagsmenn hafa hafnað samningum.

Ólafur Loftsson, formaður Félags grunnskólakennara.Vísir/Vilhelm
„Staðan er orðin mjög þröng. Það gefur auga leið að það er búið að ræða efnið mjög mikið og mjög lengi og taka tvær atrennur að því að ná þessu saman. Það verður mjög þungt að halda áfram en það er ekkert annað í boði,“ segir Ólafur í samtali við Vísi.

Ekki í verkfall nema allt annað hafi verið reynt

Skrifað var undir samningana sem hafnað var í dag í síðasta mánuði og í tilkynningu frá félaginu sagði að það væri mat samninganefndar að búið væri að sníða af helstu vankanta í fyrri samning sem hafnað var. Ólafur segir þó að ljóst sé nú að félagsmenn í félaginu séu ósammála því mati.

„Það gefur auga leið að maður leggur ekki fram kjarasamning sem maður vill að verði felldur. Það er áhyggjuefni að það skuli vera svona langt bil á milli okkar og félagasmanna. Við höfum einnig áhyggjur af því að þáttakan sé bara 70 prósent. Það er áhyggjuefni.“

Aðspurður hvort að verkfall grunnskólakennara væri framundan segir Ólafur að ekki sé tímabært að ræða það en það sé þó félagsmanna að ákveða.

„Þú ferð ekki í verkfall nema þú hafir reynt allt annað. Við erum ekki komin enn á þann stað. Það er þó ljóst að ef ekki nást samningar um það sem er ásættanlegt þá er næsta skref að fara að hugsa um verkfall. Það er félagsmanna að taka ákvörðun um það sé það vilji þeirra.“


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×