Innlent

Grundvöllur starfa sölumanna brostinn

Ingibjörg Bára Sveinsdóttir skrifar
Ný lög gjörbreyta starfsumhverfi fasteignasala.
Ný lög gjörbreyta starfsumhverfi fasteignasala. Vísir
Fasteignasölur þurfa að fjölga starfsmönnum með löggildingu sem fasteignasalar þegar ný lög um sölu fasteigna, fyrirtækja og skipa taka gildi á næstunni. Störf réttindalausra sölumanna eru úr myndinni, að mati Ingibjargar Þórðardóttur, formanns Félags fasteignasala.

Hún segir að framvegis megi sölumenn á fasteignasölum ekki skoða fasteignir, veita ráðgjöf eða taka niður tilboð og annast skjalagerð, heldur einungis starfsmenn með löggildingu.

Segir neytendur þurfa að vera á varðbergi

„Margir sölumenn hafa ekki verið á launum hjá fasteignasölum, heldur einungis á prósentum. Samkvæmt nýju lögunum hlýtur grundvöllur starfa þeirra að vera brostinn. Nú verða það eingöngu löggiltir fasteignasalar sem hafa heimild til að sinna öllum helstu störfum sem varða milligöngu um fasteignaviðskipti. Ég get ekki séð að allir þeir sem starfa núna sem sölumenn á prósentum geti haldið áfram að vinna við það sem þeir mega ekki. Það gefur auga leið. Þeir sem eru réttindalausir mega hins vegar sinna einföldum störfum,“ segir Ingibjörg.

„Margir sölumenn hafa ekki verið á launum hjá fasteignasölum, heldur einungis á prósentum,“ segir Ingibjörg Þórðardóttir, formaður Félags fasteignasala.
Hún leggur áherslu á að neytendur verði á varðbergi og spyrjist fyrir um hvort sá sem veitir þeim þjónustu á fasteignasölu hafi til þess bær réttindi.

Ingibjörg gerir ráð fyrir að nú þurfi fasteignasölur að fjölga starfsmönnum með löggildingu. „Það er fullt af fólki sem hefur farið í gegnum námið í áranna rás sem gæti komið að borðinu sem réttindafólk. Samtímis munu væntanlega fleiri sækja um námið sem veitir þeim réttindi. Hingað til hafa menn ekki beinlínis séð ástæðu til þess að stunda þetta nám þar sem þeir gátu starfað án réttinda.“



Sprenging í umsóknum um löggildingu


Fyrstu fimm mánuði ársins sóttu ellefu manns um löggildingu sem fasteignasalar hjá Sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu. Nú eru umsóknirnar orðnar um 100. Lögmenn hafa hingað til getað öðlast réttindi til fasteignasölu á grunni lögmannsréttinda sinna. Samkvæmt nýju lögunum þurfa þeir eins og aðrir að stunda fjögurra missera nám til að öðlast réttindin.

„Við höfum lengi viljað sjá að lögmenn hefðu þann hluta námsins fyrir fasteignasala sem vantar í þeirra nám. Nú kemst sú breyting á með nýju lögunum. Lögmenn hafa líklega verið að flýta sér að undanförnu að sækja um áður en nýju lögin taka gildi. Ég hef heyrt að lögmannafélagið hafi verið að hvetja sína menn til þess.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×