Sport

Grindahlauparinn kemur aftur og aftur upp í besta hlaupara NFL-deildarinnar

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Ezekiel Elliott með einum besta hlaupara sögunnar, Emmitt Smith.
Ezekiel Elliott með einum besta hlaupara sögunnar, Emmitt Smith. Vísir/AP
Nýliðinn Ezekiel Elliott hefur slegið í gegn á fyrsta ári sínu í NFL-deildinni og er með yfirburðarforystu þegar kemur að því að hlaupa með boltann í gegnum varnir andstæðinganna.

Ezekiel Elliott hefur hlaupið 1551 jarda í fyrstu fjórtán leikjum Dallas Cowboys á tímabilinu og liðið hefur þegar tryggt sér sæti í úrslitakeppninni enda með tólf sigra í fjórtán leikjum.

Elliott hljóp 159 jarda í sigrinum á á sunnudagskvöldið sem var hann sjöundi hundrað jarda leikur á tímabilinu.  Hann vakti þó líklega mesta athygli í fjölmiðlum fyrir að fagna snertimarki með því að hoppa ofan í risavaxinn pott merktan Hjálpræðishernum.

Hann vantar nú 258 jarda í tveimur síðustu leikjunum til þess að bæta nýliðamet Eric Dickerson sem hljóp 1808 jarda árið 1983.

Ezekiel Elliott er lipur, eldsnöggur og harður af sér og það er ekkert grín að ráða við hann þegar hann kemst á ferðina.

Eitt hefur vakið athygli hjá kappanum en það er að hann hoppar hvað eftir annað yfir mótherja sem eru að reyna að stoppa hann.





Hér kemur bakgrunnur Ezekiel Elliott sterkur inn. Hann var nefnilega frjálsíþróttamaður í háskóla og í menntaskóla vann hann fjórfalt á Missouri-fylkismótinu þegar hann tók gullið í 100 metra hlaupi, 200 metra hlaupi, 110 metra grindarhlaupi og 300 metra grindarhlaupi. Hann vann þessi fjögur hlaup á tveimur og hálfum tíma.

Bestu tímar Ezekiel Elliott í þessum fjórum greinum eru 10,95 sekúndur (100 metra hlaup), 22,05 sekúndur (200 metra hlaup), 13,77 sekúndur (110 metra grindarhlaup) og 37,52 sekúndur(300 metra grindarhlaup).

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×