Lífið

Gríðarstór stytta af léttklæddum Jeff Goldblum reist í London

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Vegfarendur virða fyrir sér styttuna í allri sinni dýrð.
Vegfarendur virða fyrir sér styttuna í allri sinni dýrð. Vísir/getty
Gríðarstór stytta af bandaríska leikaranum Jeff Goldblum var reist á grasflöt við Tower Bridge í London í dag. Styttan hefur vakið mikla athygli en um er að ræða auglýsingu sjónvarpsstöðvarinnar Now TV sem fagnar nú kvartaldarafmæli Jurassic Park-kvikmyndanna.

Styttan vísar í tiltekið atriði í fyrstu kvikmynd seríunnar þar sem Goldblum sést hálfber að ofan. Hlusta má á Goldblum ræða atriðið í spilaranum hér að neðan.

Hér að neðan má svo sjá fleiri myndir af styttunni sem vakið hefur mikla lukku meðal vegfarenda, sem og netverja, í London.

Þessi smelltu í sjálfu með Goldblum.Vísir/getty
Kona virðir Goldblum vandlega fyrir sér.Vísir/getty

Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×