Innlent

Gríðarlegur munur á útfararkostnaði ungbarna

Þórhildur Þorkelsdóttir skrifar
Munur á kostnaði við útfarir ungbarna getur hlaupið á hundruðum þúsunda. Ung móðir segir útfararstofur misnota aðstöðu sína þar sem foreldrar, sem þurfi að jarða nýfædd börn sín, séu ekki í ástandi til að bera saman kostnað.

Guðbjörg Þórunn Sveinsdóttir missti dóttur sína í desember 2010. Meðgangan hafði gengið vel, en þegar barnið fæddist kom í ljós að hún var með banvænan hjartagalla og lést litla stúlkan sólarhring síðar. Foreldrarnir ungu voru ákveðin í að halda jarðarför fyrir dótturina heima á Akranesi sem þau og gerðu með tilheyrandi kostnaði.

Guðbjörg er í samtökunum Litlum Englum þar sem hún er í sambandi við aðrar konur sem misst hafa fóstur eða ungabörn.

„Ég var farin að heyra það frá stelpum sem ég þekki sem hafa misst börn að það sé rosalega misjafn kostnaður. Ég stofnaði því umræðu og spurði hvort þær vildu deila með mér hvað útförin kostaði og svo sundurliðun. Sumar voru ekki að borga neitt og aðrir 20 og 70 þúsund en okkar kostnaður var 225 þúsund,“ segir Guðbjörg.

Kostnaður við slíkar útfarir veltur alfarið á einkareknum útfararstofum. Þær útfararstofur sem fréttastofa ræddi við sögðust allar reyna að stilla kosnaði í ungbarnaútförum í hóf. Þó virðist  sem stefnurnar séu misjafnar, en samkvæmt upplýsingum frá Litlum englum er lítill sem enginn kostnaður við að láta jarða ungabörn í Reykjavík. Vinnan, jarðarförin og kistan er oftast gefin, en foreldrar borga kross á leiði sem kostar um 18 þúsund krónur.

Á Akureyri er kostnaðurinn um 70 þúsund, 50 þúsund fyrir kistuna sjálfa og svo borgar fólk fyrir kross á leiðið. Á Selfossi er eini kostnaðurinn prentun á sálmaskrá.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×