Innlent

Gosi fær í gogginn á gosstöðvunum

Stefán Árni Pálsson skrifar
Refurinn Gosi
Refurinn Gosi Mynd/fésbókarsíða veðurstofu Íslands.
Björgunarsveitarmenn sem vakta vegartálmann að gosstöðvunum fá refinn Gosa í heimsókn á kvöldin. Hann er orðinn vanur því að fá gott í gogginn.

Athugun úr flugi með TF-SIF í gær sýndi að mikil blámóða og gas liggur frá gosstöðvunum upp í tæplega þriggja km hæð yfir gígnum og leggur þaðan yfir allt Suðurlandsundirlendi og Vesturland eins langt og hægt var að sjá úr vélinni.

Gasmengunin virtist mest vestan Eyjafjallajökuls en virtist þó umtalsverð allt austur á Mýrdalssand.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×