Fótbolti

Góð stemming fyrir leik Stjörnunnar og Inter | Myndir

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Vísir/Andri Marínó
Þrátt fyrir að Stjarnan hafi tapað 0-3 fyrir ítalska stórveldinu Inter í gær verður ekki annað sagt en að Silfurskeiðin, stuðningsmannahópur Stjörnunnar hafi unnið sigur í stúkunni í gær.

Góð stemming var fyrir leik á Ölver áður en haldið var niður á Laugardalsvöll í skrúðgöngu. Þar hrópuðu og kölluðu stuðningsmenn Stjörnunnar sína áfram allar níutíu mínútur leiksins.

Arnþór Birkisson, ljósmyndari Fréttablaðsins og Vísis, skellti sér á Ölver og myndaði stemminguna þar og Andri Marínó Karlsson, ljósmyndari Fréttablaðsins og Vísis smellti myndum af skrúðgöngunni.

Myndir má sjá hér fyrir neðan og í myndaalbúminu efst.

Það var stemming á Ölver í gær.Vísir/Arnþór
Máni mætti að sjálfsögðu.Vísir/Arnþór
Silfurskeiðin víðfræga.Vísir/Andri Marínó
Vísir/Arnþór
Vísir/Arnþór



Fleiri fréttir

Sjá meira


×