Bíó og sjónvarp

Glæný stikla úr íslenskri hrollvekju

Stefán Árni Pálsson skrifar
Nú er tökum að ljúka á íslensku hrollvekjunni Mara. Mara hefur verið í tökum í rúmt ár, en myndin er tekin upp á Vesturlandi og í Bandaríkjunum og verður hún gefin út á alþjóðlegum markaði á næsta ári. Vísir frumsýnir í dag glænýja stiklu úr myndinni.

Framundan er nokkuð kostnaðarsamt eftirvinnsluferli og stefna framleiðendur á að fjármagna það að mestu leyti með hópfjármögnuð á vefsíðu karolina fund, en myndin hefur hingað til verið fjármögnuð að mestu af aðstandendum myndarinnar ásamt því að fá hjálp frá ýmsum fyrirtækjum.

Mara fjallar í stuttu máli um par sem flytur frá Bandaríkjunum til Íslands til að opna gistiheimili úti í íslensku sveitinni. Þau kaupa gamalt hús og komast fljótt að því að það er ekki allt með felldu þegar þau finna djúpa holu í kjallaranum, en þar undir býr forn vættur sem aðeins hefur heyrst um í þjóðsögum. Stuttu eftir það fara stórfurðulegir hlutir að gerast.

Leikstjóri myndarinnar er Elvar Gunnarsson, en með aðalhlutverk fara Gunnar Kristinsson og Vivian Ólafsdóttir. Einnig koma aðrir íslenskir stórleikarar við sögu, s.s. Halldóra Geirharðsdóttir, Halldór Gylfason, Þór Túliníus, Björn Jörundur og Darren Foreman.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×