Bíó og sjónvarp

Glæný stikla úr Fortitude: Austurlandið í aðalhlutverki

Stefán Árni Pálsson skrifar
Dennis Quaid.
Dennis Quaid. vísir
Í vetur fóru fram tökur á annarri seríu Fortitude hér á landi en þær fóru fram á Austurlandi. Fyrri serían var einnig að mestu leyti tekin upp á landinu en að þessu sinni voru flestir tökudagar á Reyðarfirði en einnig á Eskifirði og Seyðisfirði.

Nú hefur verið gefin út glæný stikla úr þessari annarri þáttaröð og leikur lag Bjarkar Guðmundsdóttir, It's Oh So Quiet, stór hlutverk í stiklunni. Það var meðmiðillinn Austurfréttir sem greindi fyrst frá.

Þáttaröðin fer í loftið í janúar á næsta ári en Dennis Quaid og Michelle Fairley fara með aðalhlutverk í þáttunum ásamt Sofie Gråbøl, Richard Dormer og Birni Hlyni Haraldssyni.

Hér að neðan má sjá stikluna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×