Innlent

Gjöreyðingarlyf enn ekki samþykkt

Garðar Örn Úlfarsson skrifar
Nota á sauðfjárbeit og slátt auk eiturefna til að halda lúpínu í skefjum samkvæmt áætlun sem umhverfisstjóri Dalvíkurbyggðar hefur lagt fyrir byggðaráð sveitarfélagsins. Myndin sýnr árangur beitar á lúpínu.
Nota á sauðfjárbeit og slátt auk eiturefna til að halda lúpínu í skefjum samkvæmt áætlun sem umhverfisstjóri Dalvíkurbyggðar hefur lagt fyrir byggðaráð sveitarfélagsins. Myndin sýnr árangur beitar á lúpínu. Mynd/Valur Þór Hilmarsson
Byggðaráð Dalvíkurbyggðar hefur ekki samþykkt áætlun umhverfisstjóra sveitarfélagsins þar sem hann gerir meðal annars ráð fyrir að nota „gjöreyðingarlyfið" Roundup til að vinna á lúpínu, kerfli og njóla.

Fram kom í Fréttablaðinu í dag að umhverfisstjóra Dalvíkurbyggðar hefði í mars 2014 verið falið að vinna áætlun um að hefta útbreiðslu fyrrgreindra plantna og að áætlun hans hafi nú verið samþykkt í byggðaráði.

Hið rétta er að áætlun Vals Þórs Hilmarssonar umhverfisstjóra var lögð fram til kynningar í byggðaráði fyrir skemmstu en ekki afgreidd. Beðist er velvirðingar á þessari missögn.

Í fréttinni var haft eftir Vali Þór að auk notkunar illgresiseyða ætti að notast við slátt og sauðfjárbeit til að halda plöntunum í skefjum. Lúpína yrði áfram notuð þar sem við ætti.

Hugsanlega krabbameinsvaldur

Um illgresiseyðinn Roundup mátti lesa í Fréttablaðinu í dag þar sem vitnað er til fréttar Umhverfisstofnunar.

„Að undanförnu hafa borist fréttir af því að plöntuverndarvörur sem innihalda virka efnið glýfosat kynnu að valda krabbameini í mönnum. Þetta er áhyggjuefni því að notkun á þessum vörum er almenn, bæði hjá almenningi og þeim sem starfa við plöntuvernd í atvinnuskyni,“ segir í frétt á vef Umhverfisstofnunar frá júní. Menn spyrji hvort ekki sé rétt að banna allar plöntuverndarvörur hér á landi sem innihalda glýfosat. ESB sé að vinna áhættumat vegna þessa efnis sem ljúka eigi fyrir árslok.

„Verði það niðurstaða úr áhættumatinu að glýfosat geti valdið krabbameini, mun Framkvæmdastjórn ESB án efa þrengja verulega heimildir til markaðssetningar á plöntuverndarvörum sem innhalda þetta virka efni og mun sú niðurstaða einnig gilda hér á landi,“ segir Umhverfisstofnun.

Finna má aðgerðaráætlun umhverfisstjóra Dalvíkurbyggðar í viðhengi við þessa frétt.


Tengdar fréttir

Gjöreyðingarlyfi beitt gegn lúpínu á Dalvík

Áætlun um eyðingu á lúpínu, kerfli og njóla í Dalvíkurbyggð verður hrint í framkvæmd næsta vor. Beita á „gjöreyðingarlyfinu“ Roundup. Bæjaryfirvöld vilja alla landeigendur í sveitarfélaginu með í verkefnið sem taka á fimm ár.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×