Bíó og sjónvarp

Gera kvikmynd um Egils sögu Skallagrímssonar

Birgir Olgeirsson skrifar
Dagur Kári Pétursson og Benedikt Erlingsson.
Dagur Kári Pétursson og Benedikt Erlingsson.
Benedikt Erlingsson og Dagur Kári Pétursson eru staddir í Kaupmannahöfn í Danmörku þar sem þeir eru að ljúka samningum um gerð kvikmyndar um Egils sögu Skallagrímssonar. Benedikt sér um ritun handrits kvikmyndarinnar en leikstjórn verður í höndum Dags Kára.

„Við erum bara að leggja af stað, þetta er dálítil ganga fram undan en við erum að þróa þetta,“ segir Benedikt í samtali við Vísi um verkefnið. 

Sjá einnig: Egill Skallagrímsson listaskáld en einnig illræmdur morðingi

Aðspurður hvenær tökur á myndinni eru fyrirhugaðar segir Benedikt að fyrst muni hann klára kvikmyndina Fjallkonan fer í stríð. Um er að ræða hasar-, söngleikja og umhverfistrylli sem fer í tökur í júlí á næsta ári en áætlað er að hún verði frumsýnd vorið 2018.

Egils saga Skallagrímssonar verður næsta stóra verkefni Benedikts en það mun teygja sig um öll Norðurlönd og England.

Sjá einnig: Er þetta hinn sögufrægi smiðjusteinn Skallagríms?






Fleiri fréttir

Sjá meira


×