Innlent

Gekk á þaki fangelsis

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Hegningarhúsið við Skólavörðustíg.
Hegningarhúsið við Skólavörðustíg.
Lögregla fékk á þriðja tímanum í nótt tilkynningu um mann á þaki Hegningarhússins við Skólavörðustíg. Í fyrstu var talið að maðurinn væri að reyna að brjótast þar inn. Maðurinn er erlendur og ekki vitað hvort hann sé túristi eða búi hér á landi þar sem hann hann hafði engin skilríki og var ekki viðræðuhæfur.  

Maðurinn var handtekinn og var hann þá kominn inn í fangelsisgarðinn. Maðurinn var mjög ölvaður og var hann færður í nýrra fangelsi þar sem hann var vistaður meðan ástand hans lagast og hægt verður að ræða við hann.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×