Skoðun

Gefið okkur val

Þóranna Jónsdóttir skrifar
Ég las nú í vikunni pistil þar sem Andri Snær var hvattur til að draga forsetaframboð sitt til baka.  Ég vona að hann geri það ekki.  Mér finnst skipta máli að kjósendur hafi val í forsetakosningum.  

Þegar sitjandi forseti ákvað að bjóða sig fram í sjötta sinn, hætti við að hætta í annað sinn, breyttist umræðan um forsetakosningarnar.  Kosningar sem hefðu getað snúist um áhuga og málefnalega umræðu hafa klofið þjóðina í herðar niður.  Sundrung ríkir milli þeirra sem vilja breytingar og nýja tíma og þeirra sem óttast breytingar.  

Fjölmiðlaumræðan hefur einkennst af þessu síðustu daga.  Í stað þess að tefla fram valkostum og málefnum hefur umræðan snúist um hver eigi raunverulega möguleika á að fella sitjandi forseta. Það er til að mynda athyglisvert að Halla Tómasdóttir, eini kvenframbjóðandinn sem mælist með fylgi, hefur hreinlega ekki fengið pláss í fjölmiðlum. Umræðan snýst nánast eingöngu um hvaða klækjum eigi nú að beita til þess að sigra klækjarefinn sjálfan.  

Sitjandi forseti hefur eðli málsins samkvæmt talsvert fylgi, en það getur átt sér ólíkar rætur.  Margir telja sitjandi forseta hafa staðið sig vel í sinni forsetatíð. Sá hópur skiptist reyndar í þá sem vilja þakka fyrir vel unnin störf og fá nýja kynslóð til að taka við og þá sem ekki sjá fyrir sér að neinn annar geti staðið sig vel í embætti. Þó nokkrir kunna ekki við að særa fullorðinn manninn sem hefur gert margt gott í gegn um tíðina.  Svo eru þeir sem óttast breytingar, óttast framtíðina eða þekkja ekki annað. Við þá er lítið annað að segja en; „framtíðin mun koma“ við þurfum fólk sem kveður nýjan tón og verður okkur samferða inn í framtíðina.  

Þessar forsetakosningar gætu orðið svo miklu áhugaverðari, og árangursríkari, ef Andri Snær, Guðni og Halla fengju að taka umræðuna um framtíðina, þeirra sýn og áherslur. Mikið væri gaman að fá ferska umræðu um stjórnarskrá, náttúruna, jafnrétti, menningu og menntamál.  Í stað þess sitjum við uppi með umræður um „strategíska“ kosningu og taktík sem þarf að beita til þess að eiga möguleika á að fá nýjan forseta (bara einhvern) eftir 20 ára valdatíð núverandi forseta.  

Ég er þakklát fyrir verk sitjandi forseta en við stöndum á krossgötum og þurfum að slá nýjan tón. Því tel ég mál að þakka honum fyrir samfylgdina og taka skref inn í framtíðina.  Við hann og við fjölmiðla segi ég: „Plís“, gefið okkur val!

 




Skoðun

Skoðun

Saman gegn ríkisofbeldi

Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson,Örlygur Steinar Arnaldsson,Sigurhjörtur Pálmason,Simon Valentin Hirt,Kristbjörg Arna E. Þorvaldsdóttir,Ari Logn,Margrét Rut Eddudóttir skrifar

Sjá meira


×