Skoðun

Geðræn veikindi eru raunveruleg veikindi

Anna Gunnhildur Ólafsdóttir skrifar
Vinnuveitandi tekur upp símann. Starfsmaður tilkynnir um veikindi – þunglyndi. Óþreyjufullur segir vinnuveitandinn honum að skella í sig kaffi, fara í sturtu og drulla sér síðan í vinnuna. Annar starfsmaður tilkynnir um veikindi á hinni línunni – flensu. Samúðarfullur ávarpar vinnuveitandinn starfsmanninn með orðunum „elsku karlinn“ þannig að öllum er ljóst að hann mætir fullum skilningi vinnuveitandans á því að hann þurfi svigrúm til að hvílast og ná fullri heilsu.

Þessi viðbrögð vinnuveitandans í myndbandi Öryrkjabandalags Íslands (ÖBÍ) um fordóma gagnvart fötluðu fólki á vinnumarkaði á www.obi.is eru ekki einsdæmi á íslenskum vinnumarkaði. Því miður er alltof algengt að vinnuveitendur bregðist með öðrum hætti við geðrænum en líkamlegum veikindum starfsmanna sinna. Stundum er jafnvel gefið í skyn að geðræn veikindi séu ekki raunveruleg veikindi heldur leti eða val um að svíkjast undan.

Ef tekið er mið af því að 22-25% af öllum íbúum hins vestræna heims glíma einhvern tíma á ævinni við geðröskun af einhverju tagi standa langflestir stjórnendur einhvern tíma á starfsferli sínum frammi fyrir því að bregðast við geðrænum veikindum starfsmann sinna. Brýnt er að þeir átti sig á eðli geðrænna veikinda og bregðist við þeim með sama hætti og líkamlegum veikindum.

Geta haft úrslitaáhrif

Viðbrögð vinnuveitenda við geðrænum veikindum starfsmanna geta haft úrslitaáhrif á líðan og bata viðkomandi starfsmanns. Öflugur stuðningur yfirmannsins auðveldar starfsmanninum að nýta sér viðeigandi úrræði, mæta gömlu vinnufélögunum að nýju og stuðla að eigin bata með því að hefja aftur störf. Meðvitund annarra starfsmanna dregur í senn úr hættunni á misskilningi og fordómum og auðveldar starfsmanninum að hefja aftur störf.

Vinnuveitendur stuðla að vellíðan og góðri geðheilsu á vinnustað með því að tryggja gott starfsumhverfi, t.a.m. ákjósanlegar vinnuaðstæður, hóflegt vinnuálag, öflugt upplýsingastreymi og opna samskiptamenningu. Með sama hætti er brýnt að stjórnendur hafi vakandi auga með vísbendingum hjá starfsmönnum sínum um hugsanlega geðræna erfiðleika. Hér er t.a.m. átt við orkuleysi, óútskýrða fjarveru og tilfinningasveiflur. Síðast en ekki síst ættu stjórnendur ávallt að vera í góðum tengslum við næstu undirmenn sína til að geta veitt þeim viðeigandi stuðning án tafar þegar á þarf að halda.

Fordómar gagnvart fötluðu fólki eins og lýst er í myndböndum ÖBÍ eru í senn svartur blettur á íslensku samfélagi og alvarlegt brot á samningi Sameinuðu þjóðanna um mannréttindi fatlaðs fólks. Enda þótt íslensk stjórnvöld hafi skrifað undir samninginn hefur hann ekki enn verið fullgiltur. Almenningur er hvattur til skrifa undir áskorun til íslenskra stjórnvalda á www.obi.is um að fullgilda samninginn á yfirstandandi þingi og leggja þannig sitt lóð á vogarskálarnar til réttlátara og mannlegra samfélags.




Skoðun

Skoðun

Saman gegn ríkisofbeldi

Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson,Örlygur Steinar Arnaldsson,Sigurhjörtur Pálmason,Simon Valentin Hirt,Kristbjörg Arna E. Þorvaldsdóttir,Ari Logn,Margrét Rut Eddudóttir skrifar

Sjá meira


×