Tíska og hönnun

Gallaskyrta við gallabuxum

Tom Ford er ávallt smart í tauinu og lagði jakkafötunum í þetta sinn.
Tom Ford er ávallt smart í tauinu og lagði jakkafötunum í þetta sinn. Vísir/Getty
Gestir tískusýningar Toms Ford á tískuvikunni í London ráku upp stór augu þegar hönnuðurinn gekk fram á pallinn í lok sýningarinnar klæddur gallabuxum og gallaskyrtu.

Ford hefur gefið það út í viðtölum að hann fari varla út úr húsi án þess að klæðast sérsniðnum jakkafötum.

Hann tók sig hins vegar vel út í galladressinu við svartan jakka og sýndi þar með hverdagslegan klæðaburðinn í nýju ljósi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×