Bíó og sjónvarp

Gagnrýnendur keppast við að rífa í sig nýjustu mynd Will Smith

Birgir Olgeirsson skrifar
Will Smith fer með aðalhlutverkið í Collateral Beauty.
Will Smith fer með aðalhlutverkið í Collateral Beauty. YouTube.
Nú þegar skammt er eftir að árinu virðist Will Smith hafa tekist að lauma inn einni mynd fyrir áramót sem gæti náð því að verða kölluð þeim óeftirsóknaverða titli: Versta mynd ársins.

Fjallað er um málið á vef Vulture en þar segir að gagnrýnendur keppist um að rífa í sig kvikmyndina Collateral Beauty, sem skartar ekki aðeins Will Smith í aðalhlutverki heldur einnig Kate Winslet, Edward Norton og Michael Peña. Þau þrjú leika manneskjur sem sem reyna að finna leið til að fá persónu Will Smith í myndinni til að ná sér af þeirri sorg sem hann varð fyrir þegar dóttir hans dó úr banvænum sjúkdómi.

Persónur Winslet, Norton og Peña ákveða því að ráða nokkra leikara til að holdgervinga tímans, dauðans, ástarinnar og svo framvegis.

Gagnrýnendur segjast margir hverjir eiga engin svör þegar kemur að þeirri spurningu hvers vegna þessir virtu leikarar ákváðu að taka að sér að leika í þessum tilfinningalega hrærigrauti.

„Hún er það slæm að þú óskar þess að hún væri verri,“ segir Justin Chang hjá L.A. Times um myndina.

„Það er áhugavert um tíma að horfa á þessa hæfileikaríku leikara reyna að selja manni þessa hugmynd. Collateral Beauty er bara einn og hálfur klukkutími að lengd, en í réttum félagsskap virðist hún vera í heila eilífð,“ segir Moira MacDonald hjá Seattle Times.

„Þú gætir velt fyrir fyrir þér hvað titill myndarinnar þýðir. Jafnvel þó ein af persónum myndarinnar tali fjórum sinnum um það í myndinni, þá hef ég ekki hugmynd. Hvernig sem því líður þá er þetta nóg til að fá þig til íhuga hvað þú gerðir til að verðskulda þessa mynd,“ segir Stephanie Zacharek hjá Time.

Þetta eru nokkur dæmi sem eru tekin, en þau eru fleiri. Á vef Rotten Tomatoes, þar sem teknir eru saman dómar gagnrýnenda og fengið út meðaltal þeirra, er myndin metin þrettán prósent fersk, sem er afar lágt skor.

Þar er tekin saman eftirfarandi setning sem vefurinn Rotten Tomatoes segir flesta gagnrýnendur vera sammála um: Vel meinandi en gölluð í grundvallaratriðum, Collateral Beauty reynir að vera upplífgandi en verður óafvitandi að aðhlátursefni.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×