Sport

Gáfu leikmanni 4,6 milljarða án þess að hafa hitt hann

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Brock Osweiler hlær alla leið í bankann.
Brock Osweiler hlær alla leið í bankann. vísir/getty
NFL-liðið Houston Texans tók mikla áhættu er það samdi við leikstjórnandann Brock Osweiler og gaf honum risasamning.

Samningurinn er til fjögurra ára og gæti fært Osweiler 9 milljarða króna. Hann er þó öruggur um að fá 4,6 milljarða. Sama hvernig gengur eða hvað hann spilar mikið.

Þetta þótti mörgum ansi skrítið og kannski ekki síst í ljósi þess að þjálfari og eigandi liðsins þekkja Osweiler ekki neitt og töluðu ekki einu sinni við hann áður en hann skrifaði undir risasamninginn.

Samkvæmt reglum NFL-deildarinnar þá mega leikmenn sem eru að losna undan samningi ekki tala við önnur félög. Aðeins umboðsmenn leikmanna mega tala við félögin í 52 klukkutíma glugga. Þessi regla er sett til þess að félagið sem leikmaðurinn er hjá standi betur að vígi við samningaborðið.

Liðin þurfa því stundum að tefla djarft til þess að fá ákveðna leikmenn.

Þjálfari Texans sagði hæ við Osweiler er hann heilsaði upp á Peyton Manning árið 2014. Þá var Osweiler varamaður Manning hjá Denver Broncos. Það eru einu samskipti félagsins við manninn sem það ætlar að færa að minnsta kosti 4,6 milljarða.

Osweiler fékk tækifæri síðasta vetur er Manning meiddist og stóð sig ágætlega. Hvort hann hafi staðið sig nægilega vel til að fá 9 milljarða samning er svo annað mál.

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×