Innlent

Gæslan virkjaði samhæfingarstöðina vegna flugvélar í vandræðum

Atli Ísleifsson skrifar
Um klukkan 16:43 fékk stjórnstöð Landhelgisgæslunnar tilkynningu frá Flugstjórnarmiðstöðinni í Reykjavík um að þeir hefðu náð sambandi við flugvélina.
Um klukkan 16:43 fékk stjórnstöð Landhelgisgæslunnar tilkynningu frá Flugstjórnarmiðstöðinni í Reykjavík um að þeir hefðu náð sambandi við flugvélina. Vísir/Vilhelm
Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst rétt fyrir hálffimm í dag tilkynning frá Flugstjórnarmiðstöðinni í Reykjavík um að lítil einkaflugvél væri í vandræðum vegna éljagangs og sambandsleysis en síðast var vitað um vélina á flugi nálægt Borgarnesi.

Í tilkynningu frá Gæslunni segir að stjórnstöð hennar hafði samstundis samband við TF-LIF, þyrlu Landhelgisgæslunnar sem var að koma inn til lendingar á Reykjavíkurflugvelli eftir æfingaflug. Áhöfn þyrlunnar áætlaði að taka eldsneyti í Reykjavík og fara svo strax af stað til móts við flugvélina en staðsetning hennar var ekki nákvæmlega þekkt. Jafnframt boðaði Landhelgisgæslan viðbragðsaðila vegna slíkra atvika í samhæfingarstöðina í Skógarhlíð.

Um klukkan 16:43 fékk stjórnstöð Landhelgisgæslunnar tilkynningu frá Flugstjórnarmiðstöðinni í Reykjavík um að þeir hefðu náð sambandi við flugvélina. Stefndi hún þá á flugvöllinn á Sauðárkrók og bjóst við að lenda kl. 16:55. Flugvélin var svo tilkynnt lent á Sauðárkrók heilu og höldnu á áætluðum tíma. Var þyrlan þá afturkölluð sem og aðrir viðbragðsaðilar.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×