Sport

Sjáðu sprellimark Arn­þórs Ara og öll hin mörkin úr Bestu deildinni í gær

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Arnþór Ari Atlason jafnaði leikinn fyrir HK gegn Val með stórfurðulegu marki.
Arnþór Ari Atlason jafnaði leikinn fyrir HK gegn Val með stórfurðulegu marki. Vísir/Bára

Þrír leikir fóru fram í Bestu deild karla í gær. Breiðablik og Valur fögnuðu þar sigrum meðan Fram og ÍA skildu jöfn. 

Breiðablik-Stjarnan 2-1

Það tók Breiðablik ekki nema fimm mínútur að brjóta ísinn. Damir gerði vel í að vinna boltann í vörninni og heimamenn fóru í skyndisókn þar sem Viktor Karl Einarsson renndi boltanum inn fyrir vörn Stjörnunnar á Kristinn Steindórsson sem lét verja frá sér en Patrik Johannesen náði frákastinu og skoraði.

Lokamínútur fyrri hálfleiks voru ansi fjörugur. Þvert gegn gangi leiksins komust Blikar í 2-0 þar sem mislukkuð klippa Patrik Johannesen endaði á því að Jason Daði Svanþórsson var fyrstur á boltann í teignum og skoraði.

Í uppbótartíma fyrri hálfleiks átti Damir Muminovic klaufalega tæklingu inn í teig og Örvar Eggertsson féll niður og fékk verðskuldaða vítaspyrnu. Emil Atlason skoraði úr vítaspyrnunni og minnkaði muninn í 2-1 sem varð lokaniðurstaða leiks. 

Klippa: Mörkin úr leik Breiðabliks og Stjörnunnar

HK-Valur 1-2

Staðan markalaus í hálfleik en á 53. mínútu leiksins barst boltinn til Jónatans Inga eftir fyrirgjöf Tryggva Hrafns Haraldssonar og átti Jónatan í litlum vandræðum með að klára færið.

Valsliðið var með öll völd á vellinum, en fengu samt klaufalegt mark á sig. Frederik Schram, markvörður Vals, reyndi að þruma boltanum upp völlinn. Hreinsun hans var hins vegar allt of lág en mjög föst og hafnaði í höfði Arnþórs Ara Atlasonar sem stóð tæpum 30 metrum frá marki. Þaðan skoppaði boltinn í net Valsmanna. Algjört sprellimark, sjón er sögu ríkari.

Valsliði náði þó að hrista þennan skell af sér. Á 79. mínútu leiksins fékk Jónatan Ingi boltann fyrir utan miðjan teig HK og kom sér yfir á vinstri löppina sína. Mundaði hann skotfótinn og var skot hans hnitmiðað og staðan orðin 1-2 sem urðu lokatölur.

Klippa: Mörkin úr leik HK og Vals

Fram-ÍA 1-1

Eftir þónokkur frábær færi tókst Guðmundi Magnússyni loks að brjóta ísinn fyrir Fram á 65 mínútu þegar Framarar voru fljótir að hugsa, tóku innkast snöggt og Fred fann Guðmund á teignum.

Tíu mínútum síðar jafnaði ÍA þegar frábær fyrirgjöf Guðfinns Þórs Leóssonar fann Viktor Jónsson á fjærstönginni sem skallaði boltann í netið. Lokaniðurstaða 1-1.

Klippa: Mörkin úr leik Fram og ÍA

Tengdar fréttir

Uppgjör: HK - Valur 1-2 | Þriðji sigur Vals í röð

HK tók á móti Val í 7. umferð Bestu deildar karla í fótbolta en bæði lið höfðu unnið síðustu tvo leiki sína. Leikurinn var fínasta skemmtun og skoraði Arnþór Ari Atlason eitt af furðulegri mörkum sumarsins fyrir HK en Jónatan Ingi Jónsson tryggði Val sigurinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×