Bíó og sjónvarp

Egill mætti með barna­börnin á for­sýningu Snertingar

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Egill Ólafsson aðalleikari myndarinnar ásamt eiginkonu sinni Tinnu Gunnlaugsdóttur, barnabörnum og dóttur þeirra Ellen Erlu Egilsdóttur.
Egill Ólafsson aðalleikari myndarinnar ásamt eiginkonu sinni Tinnu Gunnlaugsdóttur, barnabörnum og dóttur þeirra Ellen Erlu Egilsdóttur. Hulda Margrét

Hátiðarforsýning á íslensku kvikmyndinni Snertingu í leikstjórn Baltasar Kormáks fór fram með pompi og prakt í Smárabíó í gærkvöldi. Sýningin var gríðarlega vel sótt og voru þar meðal annars alþjóðlegar stórstjörnur sem vinna nú með Baltasar að þáttagerð hér á landi.

Meðal þeirra sem létu sjá sig var danska stórstjarnan Nikolaj Coster-Waldau. Hann fer með stórt hlutverk í þáttaröðinni King and Conquerer sem Baltasar leikstýrir og framleiðir nú hér á landi. Meðal annarra sem létu sjá sig í gær voru forsetaframbjóðendur, forseti Íslands og borgarstjóri svo fáeinir séu nefndir til sögunnar.

Myndin er byggð á samnefndri skáldsögu Ólafs Jóhanns Ólafssonar, sem var mest selda bókin á Íslandi árið 2020 og hlaut mikið lof gagnrýnenda. Hún verður frumsýnd í Smárabíó, Laugarásbíó, Bíó Paradís og völdum kvikmyndahúsum á landsbyggðinni í næstu viku.

Kvikmyndin segir sögu Kristófers, eldri manns sem stendur á tímamótum og leitar svara við áleitnum spurningum úr fortíð sinni. Hvað varð um stúlkuna sem hvarf sporlaust úr lífi hans fimmtíu árum áður. Sagan teygir sig víða um heim og ferðalag Kristófer ber hann þvert yfir hnöttinn. Á leið sinni rifjar hann upp sælar minningar frá sumrinu sínu í London 1969. Egill Ólafsson fer með aðalhlutverkið sem Kristófer.

Það hefði verið ótækt að ná Ólafi Jóhanni Ólafssyni höfundi bókarinnar og Baltasar Kormáki leikstjóra myndarinnar ekki saman á mynd. Hulda Margrét

Högni Egilsson átti sinn þátt í tónlistarsköpun myndarinnar og var hress í bragði í gærkvöldi. Hulda Margrét

Pálmi Kormákur fer með aðalhlutverkið í myndinni og mætti á forsýningu með kærustunni Unni Bachman.Hulda Margrét

Nikolaj Coster Waldau sem þekktastur er sem Jamie Lannister úr Game of Thrones lét sig ekki vanta. Hulda Margrét

Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands með galopin augu á mynd með sinni heittelskuðu Elizu Reid. Hulda Margrét

Halla Hrund Logadóttir forsetaframbjóðandi stóðst ekki mátið og fékk mynd með Balta, Sunnevu, Agli Ólafssyni og barnabarni hans. Hulda Margrét

Felix Bergsson og Baldur Þórhallsson forsetaframbjóðandi létu sig ekki vanta. Hulda Margrét

Þorkell Jóelsson og Diddú létu sig ekki vanta og eru hér í mögnuðum félagsskap. Hildur Margrét

Lilja Alfreðsdóttir viðskipta- og menningarráðherra í geggjuðum félagsskap. Hulda Margrét

Unnur Bachman og kærastinn Pálmi Kormákur með rapparanum Flóna og vini. Hulda Margrét

Ofurhjónin, borgarstjórinn Einar Þorsteinsson og Milla Ósk Magnúsdóttir aðstoðarmaður ráðherra létu sig ekki vanta. Hulda Margrét

Arnar Þór Jónsson forsetaframbjóðandi og Hrafnhildur Sigurðardóttir voru sælleg í Smárabíó. Hulda Margrét

Sunneva Ása skellti kossi á sinn mann við þetta risatilefni. Hulda Margrét

Hjónin Guðrún Hafsteinsdóttir ráðherra og Hans Kristján Einarsson Hagerup gullsmiður nutu lífsins í Smáralind. Hulda Margrét

Hjónin og ferðahaukarnir Brynhildur Ólafsdóttir og Róbert Marshall með nachos og kók. Hulda Margrét

Binni Glee tók vinkonu með sér. Hulda Margrét

Ósk Gunnarsdóttir í góðum félagsskap. Hulda Margrét

Feðgarnir sáttir með kvikmyndaverkið. Hulda Margrét

Baltasar hélt að sjálfsögðu ræðu fyrir frumsýninguna og þakkaði þar sérstaklega Agli Ólafssyni sem hann sagði hafa unnið þrekvirki í myndinni.Hulda Margrét
Stefán Jónsson og Soffía Steingrímsdóttir hress í bragði. Hulda Margrét

Þorkell Jóelsson og Diddú létu sig ekki vanta og eru hér í mögnuðum félagsskap. Hildur Margrét

Selma Björnsdóttir á svo til fremsta bekk en hún sá um leikaraval í myndinni.Hulda Margrét


Tengdar fréttir

Frumsýning á Vísi: Fyrsta stiklan úr Snertingu

Stikla úr kvikmyndinni Snerting eftir Baltasar Kormák er komin út. Baltasar segist alltaf hafa verið meiri kitlumaður frekar en stiklumaður. Hann segist ekki geta beðið eftir að landsmenn fái loksins að bera myndina augum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×