Sport

Vonar að mamma horfi loksins á hann

Valur Páll Eiríksson skrifar
Jak Jones er 44. á heimslista en er kominn í undanúrslit á HM.
Jak Jones er 44. á heimslista en er kominn í undanúrslit á HM. Getty

Óvænt úrslit urðu á heimsmeistaramótinu í snóker í gær og söguleg undanúrslit fram undan. Stórstjörnurnar Ronnie O‘Sullivan og Judd Trump féllu báðir úr leik fyrir andstæðingum sem eru töluvert lægra skrifaðir.

Átta manna úrslit heimsmeistaramótsins voru leikin í Crucible-höllinni í Sheffield í gær og fyrradag en átta manna úrslitin hefjast í dag. Snókeráhugafólk var spennt fyrir möguleikanum á viðureign Judd Trump og Ronnie O‘Sullivan í undanúrslitum mótsins en ekkert varð af því.

Stuart Bingham hefur verið feikna sterkur á mótinu og sló meðal annars út Belgann Luca Brecel, ríkjandi heimsmeistara. Frammistaða hans minnir á þá frá 2015 þegar hann fagnaði sigri á HM en síðan þá hefur hann hrunið niður heimslistann og var þar 29. á lista fyrir mótið.

Bingham vann 13-10 sigur á O‘Sullivan í gær til að tryggja sætið í undanúrslitum.

Trump féll þá einnig úr keppni, fyrir Walesverjanum Jak Jones. Staðan í einvígi þeirra var jöfn 8-8 áður en Jones vann 13-9 sigur. Sá mætir Bingham í undanúrslitum og vonast til að móðir hans sjái hann loks spila á stóra sviðinu.

Móðir hann hefur skutlað honum í leiki frá því að Jones varð atvinnumaður 16 ára gamall en hefur aldrei horft á hann spila, hvorki á staðnum né í sjónvarpi.

„Hún horfir ekki einu sinni á mig í sjónvarpinu. Hún finnur sér eitthvað að gera, að þrífa húsið eða strauja,“ segir Jones.

„Hún getur ekki horft, lætur eins og enginn leikur standi yfir, og bíður svo símtals frá föður mínum um úrslitin. Auðvitað er annað mál þegar maður er kominn í undanúrslit í Crucible, en ég er alveg viss um að hún mun ekki mæta í keppnishöllina,“ bætir hann við.

Þeir 16 efstu á heimslista fá ávallt boðsmiða á HM en aðrir þar fyrir neðan fara í gegnum undankeppni í aðdraganda móts. Í fyrsta skipti í sögunni eru þrír utan efstu 16 í undanúrslitum heimsmeistaramótsins.

David Gilbert er sá þriðji, á eftir Jones og Bingham, en Gilbert mætir Kyren Wilson (tólfti á heimslista) í undanúrslitum sem hófust eftir hádegið og standa nú yfir á Eurosport sem má nálgast í gegnum vefsjónvarp Stöðvar 2.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×