Sport

Dag­­skráin í dag: Besta deildin, NBA, úr­slita­keppni Subway-deildar karla og Masters­mótið

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Gylfi Þór Sigurðsson og félagar í Val eru í beinni í dag.
Gylfi Þór Sigurðsson og félagar í Val eru í beinni í dag. vísir/Hulda Margrét

Það er nánast of mikið um að vera á rásum Stöðvar 2 Sport í dag. Við bjóðum upp á fótbolta, bæði íslenskan og erlendan. Þá er NBA á boðstólnum sem og Mastersmótið í golfi.

Stöð 2 Sport

Klukkan 19.00 er leikur Fylkis og Vals í Bestu deild karla í knattspyrnu á dagskrá. Klukkan 21.00 eru Tilþrifin á dagskrá. Þar verður farið yfir leiki dagsins í Bestu deild karla.

Stöð 2 Sport 2

Klukkan 10.20 er leikur Napoli og Frosinone í Serie A, ítölsku úrvalsdeild karla í knattspyrnu, á dagskrá. Klukkan 12.50 er leikur Sassuolo og AC Milan í sömu deild á dagskrá. Klukkan 15.50 tekur Udinese á móti Roma. Klukkan 18.35 tekur topplið Inter á móti Cagliari.

Stöð 2 Sport 3

Klukkan 17.00 er NBA 360 á dagskrá.

Stöð 2 Sport 4

Klukkan 17.30 hefst upphitun fyrir útsendingu dagsins frá Mastersmótinu í golfi. Útsending frá mótinu sjálfu hefst klukkan 18.00.

Stöð 2 Sport 5

Klukkan 19.20 tekur Þór Þorlákshöfn á móti Njarðvík í öðrum leik liðanna í 8-liða úrslitum Subway-deildar karla í körfubolta.

Stöð 2 Esport

Klukkan 19.30 er leikur New Orleans Pelicans og Los Angeles Lakers í lokaumferð deildarkeppni NBA-deildarinnar í körfubolta á dagskrá.

Vodafone Sport

Klukkan 10.40 er leikur Füchse Berlin og Flensburg um bronsið í þýsku bikarkeppni karla í handbolta á dagskrá. Teitur Örn Einarsson leikur með Flensburg.

Klukkan 13.30 er komið að leik Íslendingaliðanna Magdeburg og Melsungen í úrslitum bikarsins. Ómar Ingi Magnússon, Gísli Þorgeir Kristjánsson og Janus Daði Smárason leika með Magdeburg. Elvar Örn Jónsson og Arnar Freyr Arnarsson leika með Melsungen.

Klukkan 16.25 mætast Duisburg og Bayern München í þýsku úrvalsdeild kvenna. Ingibjörg Sigurðardóttir leikur með Duisburg á meðan Glódís Perla Viggósdóttir og Cecilía Rán Rúnarsdóttir spila með Bayern.

Klukkan 18.55 er komið að GP of the Americas-keppninni í MotoGP. Klukkan 21.55 er svo komið að leik Gotham FC og Kansas City í NWSL-deildinni í fótbolta.

Aukarás 1

Leikur HK og ÍA í Bestu deild karla í knattspyrnu er á dagskrá klukkan 16.50.

Aukarás 2

Klukkan 18.50 hefst útsending frá Egilsstöðum þar sem Höttur tekur á móti Val í öðrum leik liðanna í 8-liða úrslitum Subway-deildar karla í körfubolta.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×