Innlent

Litasprengjur sem eyði­leggja verð­mæti í töskunum sem var stolið

Jón Þór Stefánsson skrifar
Þjófarnir notuðust við Toyotu Yaris sem lögreglan lýsti eftir í gær, en sjálft þýfið kemur úr spilakössum.
Þjófarnir notuðust við Toyotu Yaris sem lögreglan lýsti eftir í gær, en sjálft þýfið kemur úr spilakössum. Samsett/Vilhelm/LRH

Öryggismiðstöðin segir að fjármunum sem var stolið úr bíl fyrirtækisins úr Hamraborginni í Kópavogi í gærmorgun hafi verið í sérhæfðum læstum verðmætatöskum. Töskurnar eru búnar litasprengjum sem eyðileggja verðmæti ef tilraun er gerð til þess að nálgast þau.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Öryggismiðstöðinni, en þar er staðfest að innbrotið hafi verið í bíl á vegum fyrirtækisins.


Veistu meira um málið? Sendu okkur endilega ábendingar á ritstjorn@visir.is eða netfang blaðamanns.


Þá segir að atvik sem þessi leiði alltaf til ítarlegrar skoðunar á verklagsferlum

„Öll verðmæti i flutningi Öryggismiðstöðvarinnar eru tryggð gagnvart viðskiptavinum fyrirtækisins. Megin áhersla í öryggisþjónustu er lögð á öryggi starfsmanna, þarna var starfsfólki ekki hætta búin þar sem um innbrot var að ræða en ekki rán,“ segir í tilkynningunni.

Öryggismiðstöðin segist ekki geta veitt neinar frekari upplýsingar á þessu stigi málsins þar sem það er í rannsókn hjá lögreglu.

Fréttastofa hefur fengið það staðfest frá Happdrætti háskólans að peningarnir sem var stolið hafi verið frá þeim. Öryggismiðstöðin sá um flutningana.

Starfsmenn Öryggismiðstöðvarinnar voru við störf í Hamraborg að safna fjármunum frá fyrirtækjum sem reka spilakassa á svæðinu. Bæði eru spilakassar í Vídeómarkaðnum og á Catalinu. 

Samkvæmt upplýsingum frá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu gæti upphæðin verið í kringum tuttugu til þrjátíu milljónir.

Samkvæmt heimildum fréttastofu stálu tveir þjófar nokkrum töskum úr peningaflutningabílnum í gærmorgun, en þjófnaðurinn virðist hafa verið þaulskipulagður og tók aðgerðin skamma stund.

Starfsmenn Öryggismiðstöðvarinnar voru samkvæmt heimildum fréttastofu inni á Catalinu að sækja peninga úr spilakössunum á meðan þjófarnir aðhöfðust. Starfsmennirnir komu út nokkrum mínútum eftir að þjófnaðurinn átti sér stað uppgötvuðu að brotist hafði verið inn í bílinn og töskunum stolið.


Tengdar fréttir

Lögreglan leitar að Toyotu

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir dökkgráum Toyotu-bíl sem er af gerðinni Yaris, árgerð 2014. Skráningarnúmer bílsins er NMA 87.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×