Fótbolti

Með 26 mörk og 25 stoð­sendingar á tíma­bilinu

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Liðfélagar Caroline Graham Hansen hjá Barcelona fagna henni eftir markið hennar á móti Real Madrid.
Liðfélagar Caroline Graham Hansen hjá Barcelona fagna henni eftir markið hennar á móti Real Madrid. Getty/Alberto Gardin

Norska knattspyrnukonan Caroline Graham Hansen er allt í öllu hjá spænska liðinu Barcelona í 3-0 sigri á Real Madrid í El Clasico um helgina.

Eftir þennan sigur Barcelona eru þær komnar með tólf stiga forskot á toppi deildarinnar. Það stefnir því í að liðið vinni spænsku deildina fimmta árið í röð.

Barcelona hefur unnið fjórtán El Clasico leiki í röð síðan að Real Madrid gleypti kvennalið CD Tacon árið 2020.

Hansen átti þátt í fyrsta markinu sem Fridolina Rolfö skoraði, átti stoðsendinguna á Aitana Bonmatí í öðru markinu og skoraði síðan það þriðja sjálf.

Markið og stoðsendingin þýða að Hansen er nú komin með 26 mörk og 25 stoðsendingar á tímabilinu í 29 leikjum í öllum keppnum. 51 skapað mark í 29 leik eða 1,75 sköpuð mörk að meðaltali í leik.

Hansen er 29 ára gömul og hefur spilað með Barcelona frá árinu 2019. Liðið hefur unnið spænsku deildina öll tímabil hennar með liðinu og Meistaradeildina tvisvar sinnum.

Norski knattspyrnusérfræðingurinn Carl-Erik Torp heldur því fram að hún sé besta fótboltakona heims í dag.

Barcelona getur tryggt sig áfram í undanúrslit Meistaradeildarinnar með sigri á Brann í seinni leik liðanna en spænska liðið vann fyrri leikinn 2-1 í Noregi.

Liðið á enn möguleika á þrennunni því liðið er komið í úrslitaleik spænska bikarsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×