Innlent

Hyggjast opna námuna og sækja efni

Margrét Björk Jónsdóttir skrifar
Efni úr námunni hefur verið nýtt í varnargarða og vegavinnu yfir Grindavíkurveg. Myndin var tekin í fyrradag en í gærkvöldi flæddi hraun í miklum mæli ofan í námuna.
Efni úr námunni hefur verið nýtt í varnargarða og vegavinnu yfir Grindavíkurveg. Myndin var tekin í fyrradag en í gærkvöldi flæddi hraun í miklum mæli ofan í námuna. Vísir/Vilhelm

Verktakar sem vinna að vegagerð og varnargörðum á Reykjanesi hyggjast freista þess að opna Melhólsnámu, þar sem hraun flæddi inn í gærkvöldi. Til stendur að reyna að útvíkka námuna svo hægt sé að ná í efni sem notað yrði til að hækka varnargarða við Grindavík.

Hraun úr eldgosinu á Sundhnúksgígaröðinni flæddi í gærkvöldi ofan í Melhólsnámu sem hefur verið nýtt við gerð varnargarðanna. 

Arnar Smári Þorvarðarson, byggingartæknifræðingur hjá Verkís segir í samtali við fréttastofu að hraun hafi farið að skríða af stað til vesturs og suðurs. Það hafi lagst upp að horninu á varnargörðum L7 og L12, þar sem þeir mætast. Þar stoppaði hraunið en fór ekki yfir garðana.

Hraunið hélt áram að síga til vestur og náði að lokum ofan í námuna. Þar rann drjúgur hraunstraumur niður fram eftir nóttu, en rennslið virðist nú hafa stöðvast. 

Hraunið lagðist upp að varnargörðum á horninu á görðum L7 og L12 en náði ekki yfir þá.Vísir

Ari Guðmundsson, byggingarverkfræðingur hjá Verkís sagði í gær að það væri bagalegt að missa námuna, en nú stendur til að reyna að opna hana að einhverju leiti. 

„Við horfum til þess að útvíkka hana og geta tekið efni,“ segir Arnar Smári. 

Vinna hafin við hækkun varnargarðanna

Arnar Smári segir að undirbúningsvinna sé hafin við hækkun varnargarðanna við Grindavík.  Hvort það verði í þessu eldgosi sem hraun muni leggjast ofan á garðana sé óvíst, en annar atburður muni koma á eftir þessu.

„Við erum byrjaðir að vinna vegi meðfram, innan við garðana til að geta ferðast til með efni og hækkað upp þar sem við teljum okkur geta það.“

Óvíst er hvenær hægt verður að hefjast handa við að leggja veg yfir hraunið sem enn á ný hefur flætt yfir Grindavíkurveg.Vísir/Vilhelm

Gasmengunar hefur orðið vart á Reykjanesi í kjölfar eldgossins en Arnar segir slíkt ekki hafa truflað vinnuna á svæðinu nema að litlu leyti.

„Það voru tveir daga í vikunni þar sem við vorum í vandræðum á Svartsengissvæðinu en þegar vindátt er hagstæð truflar það ekki.“



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×