Fótbolti

Albert fyrstur til að skora tvær þrennur fyrir Ís­land

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Albert Guðmundsson fagnar fyrsta marki sínu sem hann skoraði beint úr aukaspyrnu.
Albert Guðmundsson fagnar fyrsta marki sínu sem hann skoraði beint úr aukaspyrnu. AP/Darko Vojinovic

Albert Guðmundsson varð í gær fyrsti leikmaðurinn í sögu karlalandsliðsins í fótbolta sem nær að skora tvær þrennur fyrir Ísland.

Albert skoraði þrjú mörk í 4-1 sigri á Ísrael en með honum komu íslensku strákarnir sér í hreinan úrslitaleik um laust sæti á EM í Þýskalandi í sumar.

Fyrsta markið skoraði Albert beint úr aukaspyrnu, næsta mark eftir einleik í gegnum vörnina og það þriðja með því að vera réttur maður á réttum stað eftir frákast.

Aðeins ellefu leikmenn höfðu náð því að skora þrennu fyrir leikinn í gærkvöldi og Albert var einn af þeim. Engum þeirra hafði tekist að skora tvær þrennur.

Albert skoraði fyrri þrennu sína í vináttulandsleik á móti Indónesíu á Jakarta í janúar 2018.

Það var jafnframt næstsíðasta þrennan fyrir landsliðið en í millitíðinni hafði Aron Einar Gunnarsson skorað þrennur í sigri á Liechtenstein í undankeppni EM í fyrra.

Albert er aðeins þriðji leikmaðurinn til að skora þrennu í keppnisleik en fyrstu átta þrennur íslenska landsliðsins litu dagsins ljós í vináttulandsleikjum.

Sá fyrsti til að skora þrennu í keppnislandsleik var Jóhann Berg Guðmundsson þegar hann skoraði þrennu í 4-4 jafntefli á móti Sviss í undankeppni HM í Bern í september 2013.

  • Þrennur fyrir íslenska landsliðið:
  • Albert Guðmundsson - 2
  • 2018 á móti Indónesíu í vináttulandsleik
  • 2024 á móti Ísrael í umspili um sæti á EM
  • Ríkharður Jónsson - 1
  • 1951 á móti Svíþjóð í vináttulandsleik (ferna)
  • Teitur Þórðarson - 1
  • 1975 á móti Færeyjum í vináttulandsleik
  • Ragnar Margeirsson - 1
  • 1985 á móti Færeyjum í vináttulandsleik
  • Arnór Guðjohnsen - 1
  • 1991 á móti Tyrkjum í vináttulandsleik (ferna)
  • Þorvaldur Örlygsson - 1
  • 1994 á móti Eistlandi í vináttulandsleik
  • Bjarki Gunnlaugsson - 1
  • 1996 á móti Eistlandi í vináttulandsleik
  • Helgi Sigurðsson - 1
  • 2000 á móti Möltu í vináttulandsleik
  • Tryggvi Guðmundsson - 1
  • 2001 á móti Indlandi í vináttulandsleik (æfingamót)
  • Jóhann Berg Guðmundsson - 1
  • 2013 á móti Sviss í undankeppni HM
  • Aron Einar Gunnarsson - 1
  • 2023 á móti Liechtenstein í undankeppni EM

Leikur Úkraínu og Íslands verður sýndur í opinni dagskrá á Stöð 2 Sport þriðjudaginn 26. mars. Leikurinn hefst klukkan 19.45 en upphitun fyrir leikinn hefst klukkan 19.10.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×