Innlent

Skólaliði grunaður um að mynda börn í búnings­klefa

Árni Sæberg skrifar
Maðurinn starfaði sem skólaliði við Laugarnesskóla.
Maðurinn starfaði sem skólaliði við Laugarnesskóla. Vísir/Vilhelm

Mál starfsmanns Laugarnesskóla í Reykjavík, sem handtekinn var um miðjan október síðastliðinn, er komið á borð ákærusviðs. Hann starfaði sem skólaliði við skólann og er grunaður um kynferðisbrot með því að taka myndir í búningsklefa ungra drengja.

Þetta segir Ævar Pálmi Pálma­son­, aðstoðar­yf­ir­lög­regluþjóns í kyn­ferðis­brota­deild Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, í samtali við Mbl.is

Haft er eftir honum að drengirnir, sem séu í öðrum bekk Laugarnesskóla, hafi sjálfir tilkynnt um myndatökuna.

Nokkur börn undir

Vísir greindi frá því að „alvarlegt atvik“, sem skólastjóri Laugarnesskóla tilkynnti foreldrum barna við skólann um þann 13. október síðastliðinn, væri rannsakað sem kynferðisbrot. 

Grímur Grímsson, yfirlögregluþjónn miðlægrar rannsóknardeildar Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, sagði þá að til stæði að taka skýrslu af nokkrum börnum í Barnahúsi vegna málsins. 

„Við í Laugarnesskóla gerum okkur grein fyrir áhyggjum ykkar og höfum fullan skilning á þeim. Ítrekað skal að málið er unnið í samstarfi við foreldra þeirra barna sem áttu í hlut og aðra sem að málinu koma,“ sagði í tölvupósti til foreldra barna í Laugarnesskóla frá Birni Gunnlaugssyni, skólastjóra Laugarnesskóla, á sínum tíma.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×