Fótbolti

Barca vill losna við Lewandowski og Atlético á­huga­samt

Valur Páll Eiríksson skrifar
Lewandowski var öflugur í Spánarmeistaraliði Barcelona í fyrra en minna hefur borið á honum í vetur.
Lewandowski var öflugur í Spánarmeistaraliði Barcelona í fyrra en minna hefur borið á honum í vetur. Getty

Spænskir fjölmiðlar greina frá því að Barcelona hyggist selja pólska framherjann Robert Lewandowski í sumar. Atlético Madrid er sagt fylgjast vel með stöðu mála.

Lewandowski hefur verið einn besti framherji heims undanfarin áratug og samdi við Börsunga sumarið 2022 eftir átta ára veru hjá Bayern Munchen, hvar hann sló hvert metið á fætur öðru og vann þýska meistaratitilinn öll ár sín í Bæjaralandi.

Lewandowski gerði fjögurra ára samning við Barca, sem gildir því til 2026, en Börsungar eru sagðir vilja losa Lewandowski af launaskrá í sumar. Sá pólski verður 36 ára gamall í ágúst og verður því á 38. aldursári þegar samningur hans í Katalóníu rennur út.

Atlético Madrid er sagt renna hýru auga til Pólverjans og hyggist festa kaup á honum í sumar. Fyrir eru framherjarnir Álvaro Morata, Antoine Griezmann og Memphis Depay.

Lewandowski skoraði 23 mörk í 34 deildarleikjum í fyrra er Barcelona vann spænska meistaratitilinn. Hann hefur aðeins slakað á klónni í ár, með 13 mörk í deildinni. Lewandowski hefur hins vegar leikið betur í síðustu leikjum en framan af leiktíð. Haft eftir honum í vikunni að frammistaða hans í sigri á Atlético Madrid um helgina hafi, að hans mati, verið hans besta á tímabilinu.

Ólíklegt þykir að Börsungar geti slegið Real Madrid við í titilbaráttunni á Spáni en þeir hvítklæddu eru með átta stiga forskot á toppi deildarinnar þegar níu umferðir eru eftir af deildinni.

Xavi Hernández, þjálfari Barcelona, hefur tilkynnt að hann hætti í stöðu sinni að leiktíð lokinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×