Lífið

Hlustendaverðlaunin 2024: „Er Bent í al­vörunni svona massaður?“

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Bent sýndi Gústa B. hvernig á að taka Bentpressu.
Bent sýndi Gústa B. hvernig á að taka Bentpressu.

Það styttist óðfluga í Hlustendaverðlaunin 2024 sem fram fara næsta fimmtudag. Í tilefni af því fékk útvarpsmaðurinn Gústi B. rapparann knáa Bent með sér í ræktina. Þar sýndi Bent úr hverju hann er gerður í bekkpressu.

Gústi ræddi þar mynd af Bent þar sem má sjá rapparann massaðan og í geggjuðu formi. „Þessi hérna mynd sprengdi internetið og allir eru að pæla í því: Er bent í alvörunni svona massaður?“

Klippa: Tók Bentpressu með Gústa B.

Þarf meiri styrk í að djamma almennilega

Hlustendaverðlaunin fara fram næsta fimmtudagskvöld og verða í beinni útsendingu á Vísi og Stöð 2 Vísi. Útvarpsstöðvarnar Bylgjan, FM957 og X977 standa að verðlaunahátíðinni en það má með sanni segja að öllu verður tjaldað til og er von á sannkallaðri tónlistarveislu.

Fram koma GDRN, Prettyboitjokkó, Stjórnin, Magni, Hipsumhaps, Mugison, Diljá Péturs, XXX Rottweiler hundar og Herra Hnetusmjör. Um er að ræða ellefta skiptið sem hátíðin fer fram en sjá má lista yfir tónlistarmenn sem tilnefndir eru hér.

„Það þarf miklu meiri styrk í að djamma almennilega en að lyfta einhverjum lóðum,“ segir Bent á meðan hann fer létt með hundrað kílóin í bekkpressunni.


Tengdar fréttir

Hatar síma og reynir að svara aldrei í þá

Höfuðfat af tegundinni Sigzon, eftir íslenska hönnuðinn Sixson, er einn af þeim tíu hlutum sem tónlistarmaðurinn Mugison gæti vart lifað án. Hann segir hattanotkunina einfalda honum hárumhirðuna og ætlar hann að safna hári áður en hann verður sköllóttur.

Vill hafa nærbuxurnar sínar víðar

Víðar nærbuxur, íslenskur snúður með karamelluglassúr og minningarkassi eru meðal hluta sem tónlistarmaðurinn Fannar Ingi Friðþjófsson, forsprakki Hipsumhaps gæti vart lifað án. Hann segist eiga erfitt með að henda ólíklegasta dóti, jafnvel skrám í tölvum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×