Tónlist

Vam­píra vann Músík­til­raunir

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Vampíra fagnaði sigri.
Vampíra fagnaði sigri. Aðsend

Hljómsveitin Vampíra stóð uppi sem sigurvegari í Músíktilraunum sem lauk í kvöld að loknum fjórum undankvöldum í Hörpu. Eló hafnaði í öðru sæti og Chögma í því þriðja.

Alls tóku 43 tónlistaratriði þátt í tilraununum í ár. Undankvöldin voru fjögur í Hörpu þar sem áhorfendur hlustuðu á 86 frumsamin lög. 

Í tilkynningu segir að þau hafi verið einstaklega fjölbreytt, sterk, skemmtileg og úr allskonar tónlistarstefnum og margskonar tilraunum. 

Eló hafnaði í öðru sæti.Aðsend

Að lokum unnu tíu hljómsveitir sér rétt til þátttöku á úrslitakvöldinu en það voru þær Chögma, Cloud Cinema, Eló, Flórurnar, Frýs, Slysh, Social Suicide, Tommi G, Vampíra og Þögn sem spiluðu fyrir fullu húsi og góðri stemmningu í kvöld.

Fyrsta sæti Músíktilrauna 2024 hlaut hljómsveitin Vampíra, annað sætið hreppti Eló og þriðja sætið hlaut Chögma. 

Chögma voru að vonum ánægð með þriðja sætið.Aðsend

Í almennri símakosningu tók hljómsveitin Frýs titilinn Hljómsveit fólksins. Glæsileg verðlaun voru veitt, hljóðverstímar, úttektir í hljóðfæra- og tónlistarverslunum, styrkir úr Minningarsjóði Péturs W. Kristjánssonar og frá FTT, spilamennska á tónlistarhátíðum og sigurvegararnir munu fljúga á vit ævintýranna með Icelandair.

Öll þau sem komust í úrslit hljóta frábæran fræðslupakka Hitakassans sem undirbýr ungt tónlistarfólk fyrir atvinnumennsku í tónlist, námskeiðið er haldið í samstarfi við Útón og Tónlistarborgina Reykjavík.

Ýmiss verðlaun

  • Hljómsveit fólksins: Frýs
  • Einstaklingsverðlaun:
  • Söngur: Gísli Freyr Sigurðursson í Slysh
  • Bassi: Árni Hrafn Hrólfsson í Spiritual Reflections
  • Hljómborð: Ríkharður Ingi Steinarsson í Áttavillt
  • Gítar: Þórsteinn Léó Gunnarsson í Vampíra
  • Trommur: Jónatan Emil Sigurþórsson í Chögma
  • Rafheili: Emil Ingo Lupnaav Atlason í Emidex
  • Höfundaverðlaun FTT: Elísabet Guðnadóttir í Eló
  • Íslenskir textar: Urður Óliversdóttir í Urður





Fleiri fréttir

Sjá meira


×