Innlent

For­dæmir of­fors SA gagn­vart starfs­mönnum Icelandair

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Samninganefnd VR fordæmir framgöngu SA í nýafstöðnum kjaraviðræðum.
Samninganefnd VR fordæmir framgöngu SA í nýafstöðnum kjaraviðræðum. Vísir/Arnar

Samninganefnd verslunarmanna fordæmir það „offors“ sem hún segir Samtök atvinnulífsins hafa sýnt af sér gagnvart fámennum hópi starfsmanna við farþega- og hleðsluþjónustu Icelandair í Keflavík í vikunni. Þrátt fyrir þetta hafi ásættanleg niðurstaða náðs í kjaraviðræðum í nótt.

Samninganefndir Samtaka atvinnulífsins og verslunarmanna undirrituðu kjarasamning í Karphúsinu klukkan hálf eitt í nótt eftir miklar og erfiðar viðræður undanfarna daga. Fram kemur í tilkynningu frá samninganefnd VR að hún telji ásættanlega niðurstöðu hafa fundist fyrir aðalkjarasamning VR miðað við rammann sem búið var að sníða í samningum við önnur stéttarfélög og landssambönd. 

„Meðal atriða sem áunnust voru áfangasigrar í átt að 30 daga orlofsrétti, vinnustaðaskírteini fyrir verslanir sem auðvelda eftirlit með mögulegum réttindabrotum og jákvæðar breytingar í starfsmenntamálum. Launaliðurinn er að mestu sambærilegur þeim samningum sem á undan hafa komið,“ segir í yfirlýsingu frá samningsnefndinni. 

Ábyrgð á verðstöðugleika á herðum stjórnvalda og atvinnurekenda.

Gert er ráð fyrir 23.750 króna launahækkun að lágmarki á hverju ári og hækkunum á taxtalaunu og prósentuhækkanir fyrir efri millitekjuhópa. Aðgerðir sem stjórnvöld hafa boðað munu einnig, að mati nefndarinnar, bæta hag launafólks og þá sérstaklega barnafólks. 

„Og ef markmið um að ná niður verðbólgu og vöxtum ganga eftir mun samningurinn til lengri tíma hafa jákvæð áhrif fyrir flest vinnandi fólk,“ segir í yfirlýsingunni. 

Nefndin áréttar þá að ábyrgð á verðstöðugleika og verðbólgu hvíli nú alfarið á herðum atvinnurekenda og stjórnvalda. Á þeim liggi sú skylda að halda verðlagi niðri og koma í veg fyrir hækkandi verðbólgu. Stjórnvöld þurfi að standa við gefin fyrirheit og takast af alvöru á við vandann á húsnæðismarkaði. 

„Samninganefndin hafnar alfarið hugmyndum um að fjármagna aðgerðir tengdar kjarasamningum með niðurskurði á opinberri þjónustu, aukinni gjaldtöku eða almennum skattahækkunum,“ segir í yfirlýsingunni. 

Fengið baráttukveðjur frá systursamtökum í nágrannalöndunum

„Samninganefnd fordæmir það offors sem Samtök atvinnulífsins sýndu af sér gagnvart fámennum hópi láglaunafólks við farþega- og hleðsluþjónustu Icelandair í Keflavík. Fremur en sitja að samningaborðinu með fulltrúum þessa hóps og viðræðunefnd VR og leita lausna, ákvað SA að efna til atkvæðagreiðslu um verkbann gegn tugum þúsunda félagsfólks VR.“

Segir í yfirlýsingunni að eftir það hafi SA aldrei sest niður með VR og trúnaðarmanni starfsfólks Icelandair heldur farlið sáttasemjara að ganga milli hópa. 

„Í innanhússmiðlunartillögu ríkissáttasemjara fólust ákveðnir áfangasigrar fyrir starfsfólkið en eftir situr þessi forkastanlega aðgerð að setja á þeirra herðar ábyrgð á mögulegu verkbanni gegn tugum þúsunda félagsmanna VR. Systursamtök VR í nágrannalöndunum hafa sent félaginu stuðnings- og baráttukveðjur. Það er áríðandi að íslensk verkalýðshreyfing rísi upp sameinuð gegn tilraunum SA til að kúga launafólk með þessum hætti og vega að verkfallsrétti þeirra.“


Tengdar fréttir

Spá því að verðbólga hjaðni rólega næstu mánuði

Íslandsbanki spáir því að ársverðbólga verði um 6,5 prósent í mars og lækki örlítið á milli mánaða. Landsbankinn spáir því að ársverðbólga verði óbreytt 6,6 prósent í mars.  Greinendur beggja banka eiga von á því að verðbólgan hjaðni rólega næstu mánuði og verði um 5,4-5,3 prósent um mitt ár. Bankarnir birtu báðir spár sínar í dag.

„Ó­­vænt upp­­hlaup Sjálf­stæðis­fólks“

Formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga segir gagnrýni 26 oddvita Sjálfstæðisflokksins á aðkomu hennar að gerð kjarasamninga söguskoðun sem ekki standist. „Þetta er óvænt upphlaup Sjálfstæðisfólks myndi ég segja.“



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×