Lífið

Rúrik þakkar Miley Cyrus fyrir kynnin

Jón Þór Stefánsson skrifar
„Gaman að kynnast þér Miley Cyrus,“ skrifar Rúrik Gíslason.
„Gaman að kynnast þér Miley Cyrus,“ skrifar Rúrik Gíslason. EPA

Þúsundþjalasmiðurinn Rúrik Gíslason þakkar poppstjörnunni Miley Cyrus fyrir kynni þeirra.

Þetta kemur fram á Instagram-síðu Rúriks þar sem hann birtir stutt myndband, þar sem andlit Cyrus á skjá, að því er virðist á kvikmyndasetti.

„Gaman að kynnast þér Miley Cyrus,“ skrifar Rúrik í svokallaða Instagram-sögu sína.

Eins og alþjóð veit gerði Rúrik garðinn frægan sem fótboltamaður, en eftir að þeim ferli lauk hefur hann tekið að sér ýmis verkefni, mörg hver í hinum listræna geira. Hann er til að mynda meðlimur í strákasveitinni IceGuys.

Þá hefur hann komist í snertingu við fræga fólkið vestanhafs. Honum var boðið í hrekkjavökupartý fyrirsætunnar Heidi Klum síðasta haust þar sem mikið af stjörnuliði lét sjá sig.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×