Real Madrid slapp naum­lega á­fram

Sindri Sverrisson skrifar
Vinicius Junior skoraði mark Real Madrid í kvöld sem á endanum reyndist nóg til að koma Real Madrid áfram.
Vinicius Junior skoraði mark Real Madrid í kvöld sem á endanum reyndist nóg til að koma Real Madrid áfram. Getty/Angel Martinez

Real Madrid er komið áfram í 8-liða úrslit Meistaradeildar Evrópu en mátti hafa mikið fyrir því að slá út RB Leipzig í kvöld.

Liðin gerðu 1-1 jafntefli í kvöld en Real komst áfram á því að hafa unnið fyrri leikinn á útivelli, 1-0. Vinícius Júnior kom Real yfir á 65. mínútu í kvöld eftir sendingu Jude Bellingham, en Willy Orbán náði að jafna metin jafnharðan fyrir Leipzig.

Leipzig fékk svo tækifæri til að komast yfir, og tryggja sér framlengingu, í uppbótartíma þegar Dani Olmo átti skot sem fór í boga ofan á þverslána á marki Real.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira