Lífið

Kosningaapp RÚV til skoðunar eftir að kjós­endur Bashars kusu Heru

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Bashar Murad og Hera Björk börðust um sigurinn í keppninni. Hera hafði betur en nú hefur komið í ljós að einhverjir kjósendur Bashar virðast hafa greitt Heru atkvæði vegna galla í kosningaappinu RÚV stjörnur.
Bashar Murad og Hera Björk börðust um sigurinn í keppninni. Hera hafði betur en nú hefur komið í ljós að einhverjir kjósendur Bashar virðast hafa greitt Heru atkvæði vegna galla í kosningaappinu RÚV stjörnur. Vísir/Hulda Margrét

Myndband af meintum galla á kosningakerfi í einvígi Söngvakeppninnar á RÚV fór í dreifingu eftir að sigur Heru Bjarkar var tilkynntur í kvöld. Nokkur fjöldi fólks kannaðist við að hafa kosið Bashar en fengið kosninganúmer Heru Bjarkar á símaskjáinn sér til mikillar furðu. RÚV segir málið til skoðunar en meintur galli hafi þó ekki getað haft áhrif á niðurstöðu kvöldsins.

Vísir fékk umrætt myndband í hendurnar en það má sjá hér fyrir neðan. 

Í myndbandinu ætlar viðkomandi kjósandi að kjósa Bashar Murad í appinu Rúv Stjörnur og ýtir á símanúmer hans sem er 990-9904. 

Við það sendist sms með textanum „9909904“ áfram en þau skilaboð rata ekki á símanúmerið 990-9904 heldur á símanúmerið 990-9902 sem er númer Heru Bjarkar.

Inni á Facebook-síðunni „Júróvisjón 2024“ sem er síða fyrir áhugafólk um keppnina kannast fleiri við þetta vandamál.

Þar skrifar Iðunn Getz Jóhannsdottir færslu um málið og segir „Eruði að lenda í því að þegar þið eruð að kjósa í appinu og velja SMS til 990-9904 þá kemur ósjálfrátt númerið hjá 990-9902?“ og spyr síðan hvort einhver í hópnum hafi skýringar á þessu.

Rúnar Freyr Gíslason er framkvæmdastjóri Söngvakeppni RÚV.

„Svona athugasemdir koma á hverju ári. Við könnum auðvitað alltaf málið. Þessar athugasemdir snúa að þeim sms-atkvæðum sem hægt er að senda í gegnum appið, RÚV Stjörnur. Engar athugasemdir hafa verið gerðar vegna annarra kosningaleiða sem voru í boði,“ segir Rúnar í skriflegu svari til fréttastofu og kannast við málið.

Rúnar Freyr Gíslason hefur verið fjölmiðlafulltrúi íslenska hópsins á Eurovision undanfarin ár.Vísir

„Við erum núna að skoða með framleiðendum appsins hvort mistök geti hafa átt sér stað og eigum von á niðurstöðum úr þeirri skoðun fljótlega,“ segir Rúnar.

„En til að taka af allan vafa viljum taka fram að heildarfjöldi sms-atkvæðanna sem þessir tveir keppendur fengu, var ekki það afgerandi að það hefði haft áhrif á úrslitin. Semsagt, þó öll sms atkvæði sem sigurlagið fékk hefðu farið til þess lags sem lenti í 2. sæti, þá hefði það engu breytt um lokaniðurstöðuna. Fulltrúar Vodafone, sem voru á staðnum alla keppnina og sáu um talningu sms og innhringi-atkvæða fyrir RÚV, staðfesta þetta.“

Hann segir að allar upplýsingar um úrslit kosninganna verði gerðar opinberar við fyrsta tækifæri, eins og RÚV hafi ávallt gert. Upplýsingarnar voru gerðar opinberar á mánudagsmorgninum eftir Söngvakeppnina í fyrra.


Tengdar fréttir

Ísland fer niður um sæti í veðbönkum

Eftir að úrslitin í Söngvakeppninni voru tilkynnt í kvöld fór Ísland niður um eitt sæti í spá veðbanka um sigurvegara Eurovision. Fyrir úrslitin var Ísland talið þriðja líklegasta landið til að vinna Eurovision en fór niður í fjórða sæti eftir að Hera vann. Eins fóru líkur Íslands á sigri úr tíu prósentum í sex prósent.

Hera Björk keppir fyrir hönd Íslands í Eurovision

Hera Björk er sigurvegari Söngvakeppninnar og mun flytja lagið „Scared of Heights“ sem framlag Íslands í Eurovision árið 2024. Vísir fylgdist með úrslitum Söngvakeppninnar sem fram fóru í Laugardalshöll.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×