Innlent

Þau 42 sem urðu undir í bar­áttunni við Tobbu Marínós

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Tobba Marinós hefur marga fjöruna sopið í fjölmiðlabransanum en snýr sér nú að upplýsingagjöf.
Tobba Marinós hefur marga fjöruna sopið í fjölmiðlabransanum en snýr sér nú að upplýsingagjöf. Vísir/vilhelm

Alls sóttu 46 um starf upplýsingafulltrúa menningar- og viðskiptaráðuneytis Lilju Alfreðsdóttur. Þorbjörg Marinósdóttir, betur þekkt sem Tobba Marinós, var ráðin í starfið. 

Af þeim 46 sem sóttu um starfið drógu þrír umsókn sína til baka. Að neðan má sjá lista yfir umsækjendur um starfið.

  • Adam Óttarsson stuðningsfulltrúi
  • Alexander Ingvarsson stafrænn tæknimaður
  • Alla Moiseeva umönnunaraðili
  • Andrea Pilar Valencia Rivero túlkur
  • Auðunn Arnórsson verkefnastjóri og blaðamaður
  • Árdís Sigurðardóttir þýðandi og verkefnastjóri
  • Birgitta Guðrún Ásgrímsdóttir skrifstofustjóri
  • Bjarni Brynjólfsson upplýsingastjóri
  • Cloue Mae Tuyor Reducto þjónustufulltrúi
  • Davíð Roach Gunnarsson textasmiður
  • Edda Rún Ragnarsdóttir sérfræðingur
  • Elina Bohutska vaktstjóri
  • Elizabeth Marie Walgenbach verkefnisráðinn nýdoktor
  • Eva Karen Guðrúnardóttir nemi í fjölmiðlafræði
  • Fannar Karvel Steindórsson framkvæmdastjóri
  • Grégory D. Ferdinand Cattaneo kennari
  • Guðrún Óla Jónsdóttir textasmiður og ritstjóri
  • Gunnhildur Birna Gunnarsdóttir prófarkalesari og textasmiður
  • Gunnhildur Björg Baldursdóttir sölufulltrúi
  • Halldóra Lillý Jóhannsdóttir skrifstofustarfsmaður
  • Harpa Grétarsdóttir markaðsstjóri
  • Hreinn Ómar Smárason deildarstjóri samskiptadeildar
  • Hringur Árnason sérhæfður starfsmaður
  • Hörður Vilberg Lárusson blaðamaður
  • Jeannette Jeffrey deildarstjóri
  • Jóhanna María Kristinsdóttir verkefnastjóri
  • Jón Agnar Ólason efnisritstjóri
  • Katrín Vinther Reynisdóttir leiðbeinandi
  • Klara Hödd Ásgrímsdóttir sérfræðingur í samskipta- og kynningarmálum
  • Klara Ósk Gunnarsdóttir afgreiðslukona
  • Lára Garðarsdóttir ritstjóri og blaðamaður
  • Margrét Lára Baldursdóttir nemi í skipulagsfræði
  • María Björk Lárusdóttir sérfræðingur og fjölmiðlaráðgjafi
  • Ólafur Unnar Kristjánsson framkvæmdastjóri
  • Róbert Ingi Douglas upplýsingastjóri
  • Sandra Rós Björnsdóttir margmiðlunarhönnuður
  • Sigrún Ýr Hjörleifsdóttir sölu & markaðsstjóri
  • Svanhildur Erla Traustadóttir markaðsfulltrúi
  • Vigdís Arna Jóns. Þuríðardóttir verkefnastýra
  • Þorbjörg Alda Marinósdóttir framkvæmdastjóri

Tobba var á endanum ráðin en hún hefur mikla reynslu af fjölmiðlum, markaðsmálum og almannatengslum. Hún starfaði sem blaðamaður um árabil og á ferlinum hefur hún meðal annars ritstýrt DV og matarvef MBLis.

Hún starfaði einnig forstöðukona markaðssviðs Skjás eins í fimm ár og hefur gefið út nokkrar bækur. Nú síðast stofnaði hún og rak fyrirtækið Granólabarinn og er eigandi fyrirtækisins Náttúrulega gott.

Tobba útskrifaðist með BA í fjölmiðlafræði með áherslu á almannatengsl árið 2008 frá University of Derby. Árið 2018 lauk hún MPM gráðu í verkefnastjórnun frá Háskólanum í Reykjavík.

Starfið var auglýst laust til umsóknar 11. janúar sl. Alls bárust 43 umsóknir um starfið. Tobba tekur við starfinu af Sylvíu Rut Sigfúsdóttur, fyrrverandi blaðamanni meðal annars á Vísi, sem færði sig yfir til Advania á dögunum eftir ár í ráðuneytinu.


Tengdar fréttir



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×