Innlent

Breyta fyrir­komu­lagi sund­lauga á rauðum dögum

Lovísa Arnardóttir skrifar
Vesturbæjarlaug lokar í einn dag í ár í stað níu eins og í fyrra.
Vesturbæjarlaug lokar í einn dag í ár í stað níu eins og í fyrra. Vísir/Arnar

Opnunartími sundlauga borgarinnar verður lengdur á hátíðisdögum samkvæmt tillögu sem samþykkt var í dag í menningar-, íþrótta- og tómstundaráði Reykjavíkurborgar. Breytingin tekur gildi frá og með páskum á þessu ári.

Heildaropnun allra lauga um jól og áramót á þessu ári verður 219 klukkustundir, en var 93 klukkustundir jólin 2023. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reykjavíkurborg. Skírdagur er þann 28. mars í ár.

Áfram verður aðeins einn dagur þar sem allar laugarnar eru lokaðar en það er á jóladag. Laugarnar verða opnar á mun fleiri rauðum dögum en áður en á móti kemur að opnunartími innan dagsins styttist í einhverjum tilvikum. Til að ná settum hagræðingarmarkmiðum verður viðhaldslokun lauga einnig lengd um þrjá daga, eða úr fimm dögum í átta.

Laugardalslaug lokar bara á jóladag eins og fyrri ár. Vísir/Vilhelm

Þá verður sú breyting gerð frá og með 1. apríl næstkomandi að laugarnar verða opnar til klukkan 21:00 laugardag og sunnudag í stað klukkan 22:00.

Í tilkynningu frá borginni segir að tillagan taki mið af gagnrýni sundlaugargesta og starfsfólks á fyrirkomulag opnunartíma sundlauganna um síðustu jól en þá hafði opnunartíminn verið styttur. Þá segir að ný áætlun muni uppfylla markmið um hagræðingu en jafnframt skila aukinni þjónustu á rauðum dögum.

Gagnrýnin laut fyrst og fremst að því að of margar laugar voru lokaðar á sama tíma. Á þeim dögum sem lokað var í fjórum laugum af sjö varð eftirspurn í hinar þrjár gjarnan langt umfram þolmörk lauganna. Fjöldi gesta varð því gríðarlega mikill í einstakar laugar, sem olli óánægju og skapaði þrýsting á öryggiseftirlit, gæði vatns, hreinlæti og fleira. Álag á starfsfólk varð því mjög mikið sem ollu meðal annars streitu hjá starfsfólki og dró úr vilja þess til vinnu á viðkomandi dögum.

Samkvæmt tillögunni verður opnunartíminn samræmdur á rauðum dögum sem á að einfalda kynningu, auka jafnræði á milli hverfa og jafna álag,

Áhrif á opnunartími einstakra sundlauga á rauðum dögum verða eftirfarandi:

Grafarvogslaug verður lokuð í tvo daga árið 2024, en var lokuð í 13 daga árið 2023.

Dalslaug verður lokuð í þrjá daga árið 2024, en var lokuð í 13 daga árið 2023.

Árbæjarlaug verður lokuð í þrjá daga árið 2024, en var lokuð í 13 daga árið 2023.

Breiðholtslaug verður lokuð í þrjá daga árið 2024, en var 13 daga árið 2023.

Laugardalslaug verður lokuð í einn dag eins og verið hefur.

Sundhöllin verður lokuð í einn dag árið 2024, en var lokuð í níu daga árið 2023.

Vesturbæjarlaug verður lokuð í einn dag árið 2024, en var lokuð í níu daga árið 2023.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×