Innlent

Næsta lægð nálgast landið

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Lægðin nálgast landið í kvöld og í nótt.
Lægðin nálgast landið í kvöld og í nótt. Vísir/Vilhelm

Næsta lægð nálgast landið í kvöld og nótt. Þá hvessir af austri með úrkomu, fyrst syðst á landinu. Í dag verður hinsvegar fremur hæg sunnanátt með skúrum og eða éljum en það léttir til á Norðaustur- og Austurlandi. Hiti 0 til 4 stig.

Á vef Veðurstofunnar kemur fram að á morgun geri spár ráð fyrir að miðja þessarar lægðar fari yfir landið frá suðri til norðurs. Vindur blæs rangsælis kringum lægðarmiðjuna og áttin verður því breytileg á morgun og stinningskaldi nokkuð víða.

Einnig má víða búast við úrkomu. Í grófum dráttum má búast við rigningu eða slyddu nærri ströndinni. Meiri líkur eru á snjókomu inn til landsins.

Á fimmtudag er síðan útlit fyrir að landið verði inni í lægðarmiðjunni. Lægðin verður orðin gömul og flatbotna, að því er segir á vef Veðurstofunnar og því er útlit fyrir rólegt veður um tíma. Síðdegis á fimmtudag eru líkur á vaxandi norðanátt með ofankomu á norðurhelmingi landsins.

Veðurhorfur á landinu næstu daga:

Á miðvikudag:

Austlæg eða breytileg átt 8-15 m/s, en hægari um kvöldið. Rigning eða slydda með köflum og snjókoma inn til landsins. Hiti kringum frostmark, en allt að 5 stiga hiti við suðaustur- og austurströndina.

Á fimmtudag:

Hæg breytileg átt og bjart veður, en stöku él við ströndina. Vægt frost. Vaxandi norðanátt á norðanverðu landinu undir kvöld með snjókomu eða slyddu.

Á föstudag:

Norðan 10-18 og snjókoma eða él, en þurrt sunnantil á landinu. Hiti kringum frostmark.

Á laugardag:

Norðlæg átt 5-13. Bjartviðri sunnan heiða, en skýjað og dálítil él á Norður- og Austurlandi fram eftir degi. Frost 0 til 7 stig.

Á sunnudag:

Vestlæg átt, bjart veður og fremur kalt, en þykknar upp við vesturströndina og hlýnar þar.

Á mánudag:

Sunnanátt með rigningu og hita 3 til 8 stig, en þurrt norðaustantil á landinu. Vestlægari með skúrum eða éljum um kvöldið og kólnar.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×