Innlent

Féll út­byrðis þegar eldur kviknaði í vélar­rúmi

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Myndir af áhöfn Þórs á vettvangi.
Myndir af áhöfn Þórs á vettvangi.

Einn maður úr þriggja manna áhöfn léttabáts Herjólfs féll útbyrðis þegar eldur varð laus í vélarrúmi bátsins. Þegar björgunarskipið Þór kom á staðinn hafði hinum tveimur tekist að hífa manninn um borð og slökkva eldinn með slökkvikerfi í vélarrúmi hans.

Herjólfur hafði verið á leið úr Landeyjahöfn til Vestmannaeyja og var ferðin notuð til að æfa notkun léttabátsins þegar kviknaði í vélarrúminu.

Björgunarskipið Þór var kallað út á hæsta forgangi og hélt úr höfn klukkan 18:35 til móts við Herjólf og léttabátinn. Þegar Þór kom á staðinn nokkrum mínútum síðar hafði tekist að slökkva eldinn og bjarga manninum og því engin hætta lengur á ferðum.

Áhöfn léttabátsins var tekin um borð í Þór og áhöfn björgunarskipsins kom toglínu í léttabátinn. Þór hélt svo með léttabátinn í togi til hafnar í Vestmannaeyjum. Mennirnir þrír sem voru um borð í léttabátnum voru að eigin ósk fluttir með sjúkrabíl til skoðunar á sjúkrahús Vestmannaeyja.

Gott veður og sjólag var á staðnum og gengu aðgerðir vel. Þór var lagstur að bryggju um 45 mínútum eftir að lagt var úr höfn.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×