Lífið

Ólafía Þórunn og Thomas eignuðust dreng

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Ólafía Þórunn er einn fremsti kylfingur Íslendinga.
Ólafía Þórunn er einn fremsti kylfingur Íslendinga. Instagram@olafiakri

Fyrrverandi atvinnukylfingurinn Ólafía Þórunn Kristinsdóttir og eiginmaður hennar Thomasi Bojanowski eignuðust dreng þann 8. febrúar síðastliðinn.

Ólafía birti fallega mynd af hvítvoðungnum í prjónuðu heimfarasetti á Instagram.

Drengurinn er þeirra annað barn en fyrir eiga þau soninn Maron Atlas, tveggja ára. 

Ólafía, sem er einn fremsti kylfingur sem Íslendingar hafa átt, tilkynnti sumarið 2022 að hún væri hætt í atvinnumennsku í golfi og að hún ætlaði sér að takast á við ný ævintýri.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×