Tónlist

Myndaveisla: Öllu til tjaldað í loka­þætti Idolsins

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Keppendurnir urðu góðir vinir í ferlinu.
Keppendurnir urðu góðir vinir í ferlinu. Vísir/Hulda Margrét

Idol stemningin náði algjöru hámarki síðastliðið föstudagskvöld þegar sigurvegari seríunnar var krýndur. Glamúrinn gaf ekkert eftir og þau Anna Fanney, Jóna Margrét og Björgvin sungu sitt síðasta, í bili. 

Anna Fanney stóð uppi sem sigurvegari og sagði hún að sigurinn hefði komið sér algjörlega í opna skjöldu. Hún og Jóna Margrét stóðu tvær eftir þegar úrslitin voru tilkynnt. 

Ásamt þríeykinu komu Júlí Heiðar og Patrik Atlason fram og fluttu nýja lagið Heim. Hildur Vala, hin íslenska Elsa, flutti lagið Ég er frjáls úr væntanlega söngleiknum Frost. Hún skein sannarlega skært í pallíettusíðkjól en Patrik klæddist sömuleiðis kjól í sínu atriði frá Hildi Yeoman. 

Dómararnir Bríet, Birgitta Haukdal, Daníel Ágúst og Herra Hnetusmjör klæddust sínu fínasta pússi að vanda og sömuleiðis kynnarnir Aron Már og Sigrún Ósk. 

Það var líf, fjör, glimmer og gleði í Fossaleyni þar sem keppnin var haldin og hér má sjá stemningsmyndir frá kvöldinu: 

Það var gríðarleg stemning í salnum en það seldist upp á innan við mínútu. Vísir/Hulda Margrét
Björgvin var sendur heim í miðjum þætti og eftir stóðu Jóna Margrét og Anna Fanney. Vísir/Hulda Margrét
Topp átta föðmuðu Önnu Fanneyju eftir úrslitin. Vísir/Hulda Margrét
Anna Fanney tók Amy Winehouse lagið Back to black og dressaði sig upp í stíl við lagið. Vísir/Hulda Margrét
Jóna Margrét söng af öllum kröftum og gaf sig alla í performansinn. Vísir/Hulda Margrét
Gústi B var í góðum gír á sviðinu í auglýsingahléi. Vísir/Hulda Margrét
Sigrún Ósk og Aron Már skinu skært. Vísir/Hulda Margrét
Á bak við Idolið er risastór hópur af öflugu fólki sem leggur höndum saman.Vísir/Hulda Margrét
Bríet, söngkona og Idol dómari, er sannkallaður ofurtöffari og var stórglæsileg að vanda. Hún virðist hafa dregið tískuinnblástur til sjóðheita tískuhússins Schiaparelli. Vísir/Hulda Margrét
Daníel Ágúst Idol dómari stórglæsilegur í ljósfjólubláu. Vísir/Hulda Margrét
Birgitta Haukdal glæsileg í gulli. Vísir/Hulda Margrét
Herra Hnetusmjör brosti sínu breiðasta. Hann klæddist gallasetti frá tískuhúsinu Louis Vuitton og var með hatt frá íslensku hönnuninni Sigzone. Vísir/Hulda Margrét
Það er erfitt að ímynda sér hvers lags spennufall getur fylgt því að vinna Idolið!Vísir/Hulda Margrét
Hjónin Andri Þór Guðmundsson, forstjóri Ölgerðarinnar, og Marín Magnúsdóttir. Vísir/Hulda Margrét
Patrik mætti í rauðum kjól frá Hildi Yeoman. Með honum hér er Aníta Rós. Vísir/Hulda Margrét
Júlí Heiðar var sömuleiðis í Yeoman fatnaði og dansararnir. Vísir/Hulda Margrét
Anna Fanney var í sjokki þegar hún áttaði sig á því að hún hefði unnið. Vísir/Hulda Margrét
Jóna Margrét skein sínu allra skærasta.Vísir/Hulda Margrét
Anna Fanney stóð uppi sem sigurvegari kvöldsins og var stórkostleg. Vísir/Hulda Margrét
Hildur Vala Baldursdóttir fer með hlutverk Elsu í söngleiknum Frost sem verður frumsýnt í Þjóðleikhúsinu í mars næstkomandi. Hildur flutti lagið Ég er frjáls í úrslitaþætti Idol.Vísir/Hulda Margrét
Ungir Idol aðdáendur biðu spenntir eftir að sjá stjörnurnar á sviði. Vísir/Hulda Margrét
Binni Glee mætti ásamt vinkonu sinni Katrínu Önnu. Vísir/Hulda Margrét
Ungur aðdáandi fékk selfie með Herra Hnetusmjöri. Vísir/Hulda Margrét
Það voru að sjálfsögðu skiptar skoðanir á því hver ætti að vinna. Vísir/Hulda Margrét
Þessi hélt með Önnu Fanneyju. Vísir/Hulda Margrét
Útvarpsmaðurinn Ívar Guðmundsson mætti með stjúpdóttur sinni. Vísir/Hulda Margrét
Gunnar frændi Önnu Fanneyjar var í salnum. Vísir/Hulda Margrét
Herra Hnetusmjör og Gústi B í góðum gír. Herra mætti með hattinn, sem er íslensk hönnun.Vísir/Hulda Margrét
Soffía Kristín, Baldvin Hlynsson, Una Torfa og Halldór Gunnar Pálsson. Síðastnefnd þrjú sömdu Idol lagið Skýjaborgir og Soffía Kristín er umboðsmaður hjá Iceland Sync.Vísir/Hulda Margrét
Halldór, Helga og Sylvía Briem mættu með börnin. Vísir/Hulda Margrét
Það voru fleiri en Herra sem mættu með hattinn. Þessar rokkuðu bleika gelluhatta - og fjaðrir sömuleiðis.Vísir/Hulda Margrét
Idol keppendurnir gáfu eiginhandaráritanir. Vísir/Hulda Margrét
Efstu átta áttu fallegt móment uppi á sviði. Vísir/Hulda Margrét
Þessi voru í góðum gír. Vísir/Hulda Margrét
Rakel og Birgitta voru báðar í topp átta. Vísir/Hulda Margrét
Anna Fanney, Jóna Margrét og Björgvin voru stórglæsileg í hvítum dressum. Vísir/Hulda Margrét
Mæðginin Elísabet Gunnars og Gunnar Manúel voru í Idol stuði. Vísir/Hulda Margrét
Stöð 2 drottningarnar Eva Georgs og Þóra Clausen. Vísir/Hulda Margrét
Allar hendur upp í loft! Vísir/Hulda Margrét
Áfram Björgvin! Þú ert bestur - má sjá skrifað á plakat í forgrunni. Vísir/Hulda Margrét
Anna Fanney þurfti smá tíma til að ná áttum eftir að tilkynnt var um að hún hefði sigrað. Vísir/Hulda Margrét
Fólkið á bak við tjöldin var heldur betur sátt eftir lokaþáttinn. Lúðvík Páll, Eva Georgs, Björgvin og Helga Hauks. Vísir/Hulda Margrét
Svava Marín á Vísi var með öfluga Idol vakt í beinni textalýsingu. Vísir/Hulda Margrét
Anna Fanney og Jóna Margrét föðmuðust þegar úrslitin voru tilkynnt. Vísir/Hulda Margrét
Anna Fanney ásamt Idol kynnunum Sigrúnu Ósk og Aroni Mola. Vísir/Hulda Margrét
Þvílík gleði! Vísir/Hulda Margrét
Sigrún Ósk og Aron Már Ólafsson eru glæsilegir kynnar. Vísir/Hulda Margrét
Anna Fanney Idolstjarna 2024.Vísir/Hulda Margrét


Tengdar fréttir

„Var núll að búast við því að ég myndi vinna“

„Ég var 100% bara að bíða eftir því að nafnið hennar Jónu yrði kallað upp,“ segir nýkrýndi Idol sigurvegarinn Anna Fanney í samtali við Brennsluna á FM957 í morgun. Hún segist ótrúlega þakklát fyrir sigurinn og hlakkar til að demba sér í stúdíóið.

Anna Fanney er Idolstjarna Íslands

Anna Fanney Kristinsdóttir er Idolstjarna Íslands. Hún keppti til úrslita í kvöld á móti Jónu Margréti og bar sigur úr býtum.

Vaktin: Anna Fanney er Idolstjarna Íslands

Stóra stundin er handan við hornið og spennan áþreifanleg. Úrslitakvöld Idol er í beinni útsendingu á Stöð 2 í kvöld. Þrjú keppa til úrslita í kvöld, þau Anna Fanney, Björgvin og Jóna Margrét, sem hafa fangað huga og hjörtu þjóðarinnar. Við fylgjumst auðvitað með úrslitakvöldinu og lýsum framvindunni í Vaktinni á Vísi.

Einn keppandi sendur heim fyrir loka-einvígið

Það er komið að því. Ný Idolstjarna Íslands verður krýnd annað kvöld í Idolhöllinni að Fossaleyni. Anna Fanney, Björgvin og Jóna Margrét standa eftir og keppast um að verða næsta Idol-stjarna Íslands. 

Nærmynd af Idol þríeykinu: „Við erum öll búin að sigra“

Spennan magnast í Idolinu og eftir standa þrír. Næstkomandi föstudagskvöld nær spennustigið svo hámarki þegar lokaþáttur Idolsins verður sýndur í beinni útsendingu á Stöð 2 og í ljós kemur hver stendur uppi sem sigurvegari. Anna Fanney, Björgvin Þór og Jóna Margrét keppast um sigurinn en Lífið á Vísi fékk að kynnast þeim örlítið nánar.

Myndaveisla: Júlí Heiðar og Prettyboitjokkó í eina sæng

Tónlistarmaðurinn og hjartaknúsarinn Júlí Heiðar Halldórsson fagnaði sinni fyrstu sólóplötu, Þrjátíu og þrír, með sérstöku hlustunarpartýi síðastliðið miðvikudagskvöld. Platan er væntanleg 22. mars á 33 ára afmælisdegi Júlís.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×