Innlent

Skoða þurfi á­stæðu fjölgunar bana­slysa strax

Bjarki Sigurðsson skrifar
Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra segir stöðuna vera óviðunandi.
Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra segir stöðuna vera óviðunandi. Vísir/Vilhelm

Innviðaráðherra segir að skoða verði ástæðu fjölda banaslysa í umferðinni í byrjun árs sem fyrst. Hann segir stöðuna algjörlega óviðunandi.

Fyrsta mánuð þessa árs létust sex manns í fjórum mismunandi umferðarslysum. Það er ansi mikið, en til að mynda létust jafn margir í umferðinni allt árið 2019.

Fleiri slösuðust

Slysin fjögur áttu sér öll stað sunnarlega á landinu, eitt á Grindavíkurvegi, annað nálægt Skaftafelli, eitt á Hvalfjarðarvegi og svo nú síðast á mánudag á Suðurlandsvegi. Öll slysin urðu við árekstur tveggja eða fleiri ökutækja og slösuðust fleiri í slysunum, þar á meðal börn.

Innviðaráðherra segir stöðuna hræðilega og er þegar farinn að skoða hvort það sé hægt að sporna gegn þessari aukningu.

„Þetta er eitthvað sem við verðum að skoða einn tveir og þrír og ég á fund eftir helgina, annars vegar með Rannsóknarnefnd samgönguslysa og svo Vegagerðinni og Samgöngustofu þar sem við reynum að átta okkur á því hvort það sé eitthvað sem við getum gert. En þetta er alveg óviðunandi staða og við verðum að gera allt sem mögulegt er til að sporna gegn þessu,“ segir Sigurður.

Klippa: Þurfa að rannsaka fjölgun banaslysa

Tryggja að svona gerist ekki

Meðal þess sem verður skoðað er hvort eitthvað tengi þessi slys saman, svo sem óviðunandi hálkuvarnir eða annað.

„Hvort við séum að horfa á eitthvað sem er erfitt að útskýra en kallar kannski á einhverskonar viðbrögð. Við verðum að vara varlegra og tryggja með öllum ráðum að svona alvarleg slys gerist ekki,“ segir Sigurður Ingi.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×