Handbolti

Elvar marka­hæstur í sigri og Teitur skoraði fimm

Dagur Lárusson skrifar
Elvar Örn Jónsson fór mikinn að venju.
Elvar Örn Jónsson fór mikinn að venju. MT Melsungen

Elv­ar Örn Jóns­son var magnaður fyr­ir Melsungen í átta liða úrslitum í þýska bikarnum í handbolta í kvöld er liðið mætti TUS N-Lübbecke.

Elv­ar skoraði tíu mörk og var þar með markahæstur á vellinum en Arnar Freyr kom einnig við sögu og skoraði þrjú mörk. Lokatölur leiksins voru 30-28.

Teitur Örn Einarsson var síðan einnig í eldlínunni í kvöld í bikarnum fyrir Flensburg en hann skoraði fimm mörk í sigri á Hamburg þar sem lokatölur voru 37-25. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×