Körfubolti

Allir falir hjá Golden State nema Curry

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Chris Paul og Klay Thompson gætu yfirgefið Golden State Warriors í næsta mánuði.
Chris Paul og Klay Thompson gætu yfirgefið Golden State Warriors í næsta mánuði. getty/Thearon W. Henderson

Golden State Warriors hefur ekki staðið undir væntingum í NBA-deildinni í körfubolta í vetur. Félagið er tilbúið að gera róttækar breytingar á leikmannahópi sínum.

Golden State hefur unnið nítján leiki og tapað 24 og er í 12. sæti Vesturdeildarinnar.

Búist er við því að Golden State geri breytingar á hópi sínum þegar opnað verður fyrir skipti á leikmönnum 8. febrúar næstkomandi.

Samkvæmt heimildum Shams Charania á The Athletic eru allir leikmenn Golden State falir, fyrir utan Stephen Curry.

Þar á meðal eru Klay Thompson og Chris Paul. Thompson hefur leikið með Golden State allan sinn feril í NBA og fjórum sinnum orðið meistari með liðinu. Paul kom til Golden State fyrir tímabilið en þessum frábæra leikstjórnanda hefur ekki tekist að snúa gengi liðsins við.

Meðal annarra leikmanna sem Golden State gæti skipt eru ólátabelgurinn Draymond Green og Andrew Wiggins sem átti risastóran þátt í síðasta meistaratitli liðsins, 2022.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×