Sport

Bjarni: Það er fín stemning í hópnum þrátt fyrir að sér­fræðingar tali um annað

Andri Már Eggertsson skrifar
Bjarni Magnússon, þjálfari Hauka, var ánægður með sigurinn
Bjarni Magnússon, þjálfari Hauka, var ánægður með sigurinn Vísir/Diego

Bjarni Magnússon, þjálfari Hauka, var afar ánægður með níu stiga sigur gegn Stjörnunni 74-65. Bjarni var sérstaklega ánægður með hvernig liðið setti tóninn í upphafi leiks.

„Orkan var góð og mér fannst við spila vel sóknarlega. Í fyrri hálfleik hefðum við getað verið með stærra forskot en Stjarnan náði að ýta okkur aðeins úr því sem við vildum gera en heilt yfir er ég ánægður með framlagið hjá leikmönnum,“ sagði Bjarni Magnússon eftir leik.

Haukar tóku frumkvæðið strax í upphafi leiks með því að gera fyrstu átta stigin og litu aldrei um öxl eftir það.

„Ég vissi ekki á hverju ég átti von á frá liðinu en þekkjandi stelpurnar þá vissi ég að þær ætluðu að gera betur heldur en síðast og við byrjuðum leikinn vel. Við gerðum þetta aðeins of spennandi síðustu mínúturnar en þetta var nauðsynlegur sigur hjá okkur.“

Haukar voru fimmtán stigum yfir þegar haldið var í fjórða leikhluta. Stjarnan datt hins vegar í gang í fjórða leikhluta og saxaði forskot Hauka niður í sex stig.

„Við hættum að hitta þegar að þær fóru í svæðisvörn. Við náðum að leysa vörnina þeirra til að byrja með en síðan kom hik á okkur og þá datt vörnin okkar úr takti og þær fengu auðveldar körfur sem þær settu ofan í.“

Bjarni sagði að hann væri ekki að fara að styrkja liðið meira og skaut á sérfræðingana í Körfuboltakvöldi í leiðinni.

„Ég er með flottan hóp og það er fín stemning í hópnum þrátt fyrir að sérfræðingar hjá ykkur hafi alltaf talað um að það hafi verið léleg stemning hérna í Ólafssal. Það hefur aldrei verið og ég hef verið hérna í mörg ár og þetta er geggjaður hópur og þær eru spenntar að halda áfram í framhaldinu,“ sagði Bjarni Magnússon að lokum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×