Innlent

Kallaðar út vegna vél­sleða­slyss við Hamragarðaheiði

Atli Ísleifsson skrifar
Frá vettvangi í dag.
Frá vettvangi í dag. Landsbjörg

Björgunarsveitir á Suðurlandi hafa verið kallaðar út vegna konu sem slasaðist í vélsleðaslysi á Hamragarðaheiði vestan við Eyjafjallajökul, skömmu eftir hádegi í dag.

Jón Þór Víglundsson, upplýsingafulltrúi Slysavarnafélagsins Landsbjargar, segir að samkvæmt upplýsingum sé konan beinbrotin. 

Björgunarsveitir eru nú á leiðinni á staðinn, en konan er þó ekki ein á vettvangi slyssins.

Hann segir útkallið hafa komið um klukkan 12:30.

Eftirfarandi tilkynning var send á fjölmiðla skömmu fyrir klukkan 15 í dag vegna slyssins:

Um 12:30 í dag voru björgunarsveitir á Hvolsvelli og Hellu kallaðar út vegna tilkynningar um vélsleðaslys á Hamragarðaheiði. Skömmu síðar var óskað eftir þyrlu frá Landhelgisgæslu.

Þar var á ferðinni hópur fólks og einn ferðalanga velti sleða sínum og virðist hafa orðið undir sleðanum. Óttast var að viðkomandi væri fótbrotinn.

Vel gekk að komast upp Hamragarðaheiðina og að slysstað. Þyrla fór í loftið frá Reykjavík rúmlega 13.

Talsverður skafrenningur var á slysstað og ljóst að betra væri að færa sjúkling neðar í heiðina þangað sem þyrla gæti lent vandræðalaust.

Búið var um sjúklinginn og hann fluttur í bíl björgunarsveitar að lendingarstað þyrlu.

Þyrla var lent á heiðinni rétt fyrir klukkan 2 og var sjúklingur þá færður yfir í hana og fluttur á brott.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×