Fótbolti

Juventus í bullandi titil­bar­áttu

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Fagnar öðru af tveimur mörkum sínum.
Fagnar öðru af tveimur mörkum sínum. Jonathan Moscrop/Getty Images

Juventus er í bullandi titilbaráttu í Serie A, ítölsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu, eftir 3-0 sigur á Sassuolo. Þegar 20 umferðir eru búnar er liðið aðeins tveimur stigum á eftir toppliði Inter frá Mílanó.

Serbneski framherjinn Dušan Vlahović kom Juventus yfir snemma leiks eftir undirbúning Fabio Miretti. Vlahović var svo aftur á ferðinni áður en fyrri hálfleik lauk og staðan 2-0 í hálfleik.

Federico Chiesa gulltryggði sigurinn með marki í síðari hálfleik eftir sendingu frá Manuel Locatelli. Lokatölur 3-0 og Juventus með 49 stig eftir 20 umferðir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×