Handbolti

Portúgal með fullt hús stiga í F-riðli

Siggeir Ævarsson skrifar
Costa var eðli málsins samkvæmt valinn maður leiksins fyrir frammistöðu sína
Costa var eðli málsins samkvæmt valinn maður leiksins fyrir frammistöðu sína Twitter@Sporting_CPAdep

Portúgal er komið í lykilstöðu á Evrópumótinu í handbolta en liðið lagði Tékkland 27-30 í dag. Hinn 21 árs gamli Martim Costa fór á kostum og skoraði ellefu mörk.

Tékkar eru því án stiga í F-riðli eftir tvo leiki ásamt Grikkjum, en Grikkland mætir Danmörku núna kl. 19:30. Alls eru sex leikir á dagskrá í dag og þremur er þegar lokið. Seinni leikir dagsins hefjast allir núna klukkan hálf átta.

Í D-riðli unnu Slóvenar góðan 32 -25 sigur á Póllandi og eru enn taplausir og Pólverjar sigurlausir. Seinni leikur dagsins er viðureign frændþjóða okkar þar sem Færeyingar vonast til að ná sínum fyrsta sigri á stórmóti í hús þegar þeir mæta Norðmönnum.

Í E-riðli unnu Hollendingar 16 marka stórsigur á Bosníu-Hersegóvínu og eru með fullt hús stiga eftir tvo leiki. Í seinni leik dagsins mætast Svíþjóð og Georgía en Svíar geta með sigri jafnað Hollendinga að stigum.

Leikir dagsins. Athugið að seinni leikir dagsins hefjast kl. 19:30 að íslenskum tíma.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×